Skoðun

Persson og Skarphéðinsson

Ögmundur Jónasson skrifar
Enn reynir okkar ágæti utanríkisráðherra að sýna fram á hve hagstætt það yrði Íslendingum að ganga í Evrópusambandið. Í Fréttablaðinu er nú leiddur til vitnis sósíaldemókrat og fyrrum forsætisráðherra Svía, Göran Persson. Um þennan systurflokksmann sinn segir Össur Skarphéðinsson: „Persson benti á að eftir að Svíar gengu í Evrópusambandið árið 1994 hefðu þeir u.þ.b. tvöfaldað útflutning sinn. Síðustu 20 árin hefðu Svíar haft jákvæðan viðskipatjöfnuð við útlönd."

Þetta telur utanríkisráðherra sem sagt vera góðan mælikvarða á ágæti Evrópusambandsaðildar. En hvernig skyldi okkur Íslendingum hafa reitt af á þessu tímabili? Nú þarf að gæta sín í samanburðarfræðunum. Þannig segja útflutningstölur eða viðskiptajöfnuður ekki alla söguna. Hvað viðskiptajöfnuðinn áhrærir þá „reiknast til gjalda áfallnir vextir föllnu bankanna, sem verða aldrei greiddir", svo vitnað sé í nýlegan pistil frá greiningardeild Arion banka.

Og ef við lítum á vöruútflutninginn verður að taka gengisbreytingar með í reikninginn. Vöruútflutningur Íslendinga nam árið 1994 rúmum 112 milljörðum króna en rúmum 620 á síðasta ári. Útflutningurinn hafði með öðrum orðum rúmlega fimmfaldast! Upphæðin hefði hins vegar tæplega þrefaldast ef upphæðir væru uppreiknaðar miðað við meðalgengi vöruviðskiptavogar á verðlagi í október 2012 og farið úr 217 milljörðum í rúmlega 632 milljarða á síðasta ári. Með öðrum orðum var vöruútflutningur frá Íslandi samkvæmt þessari reikniformúlu nær þrefalt meiri árið 2011 en hann hafði verið árið 1994!

Þannig að Össur Skarphéðinsson hefði hæglega getað sagt við hinn sænska vin sinn að Íslendingar hefðu ekki síður staðið sig en Svíar, sumpart jafnvel gert ennþá betur en þeir. Þó værum við utan Evrópusambandsins.

Fróðlegt væri að skoða önnur þjóðarbú í þessu samhengi: til dæmis hið norska, spænska, þýska og gríska. Ætli það kæmi ekki upp úr kafinu að einsleitir krónutölumælikvarðar segðu ekki allan sannleika um velgengni ríkja eða ágæti ríkjasambanda. Ef til vill væri nær að skoða tölur um atvinnuleysi og umfang velferðarþjónustu.

Greinilegt þykir mér að Persson þarf að veita vini sínum Skarphéðinssyni einhver fyllri rök en þau sem er að finna í sænskum hagskýrslum svo dugi til að sannfæra Íslendinga um að Evrópusambandsaðild sé allra meina bót.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×