Landsliðsþjálfararnir í blaki, Matthías Haraldsson hjá konunum og Apostol Apostolov hjá körlunum, eru búnir að velja lokahópa sína fyrir undankeppni HM en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í heimsmeistaramótinu. Liðin halda svo bæði á Smáþjóðaleikana í kjölfarið. Þetta kemur fram á heimasíðu Blaksambandsins Íslands.
Matthías Haraldsson er landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Íslands en hann er að stýra liðinu í fyrsta sinn. Honum til aðstoðar er Einar Sigurðsson. Enginn nýliði er í hópnum.
Kvennaliðið leikur í F riðli í undankeppni HM innan Evrópu. Mótið fer fram í Daugavpils í Lettlandi dagana 24.-26. maí næstkomandi og eru mótherjar liðsins Lettland, Eistland og Litháen. Ísland hefur aldrei leikið landsleik við neina af þessum þjóðum.
Að móti loknu í Lettlandi heldur liðið áfram för sinni á Smáþjóðaleikana í Luxemborg en þeir hefjast formlega 27. maí og fyrsti keppnisdagur er 28. maí. Þar mætir liðið heimaliðinu í Luxemborg, Kýpur og San Marino.
Kvennalandslið Íslands vorið 2013
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, VC Kanti Schaffhausen
Fríða Sigurðardóttir, HK
Kristina Apostolova, Aftureldingu
Elsa Sæný Valgeirsdóttir, HK
Erla Rán Eiríksdóttir, Þrótti Nes
Auður Anna Jónsdóttir, Aftureldingu
Berglind Gígja Jónsdóttir, HK
Hulda Elma Eysteinsdóttir, Þrótti Nes
Birta Björnsdóttir, Montevallo USA
Ásthildur Gunnarsdóttir, Stjörnunni
Hjördís Eiríksdóttir, Stjörnunni
Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, Þrótti Nes
Apostol Apostolov þjálfar karlalandslið Íslands og honum til aðstoðar er Vignir Þröstur Hlöðversson. Apostol stillir upp 14 manna leikmannahópi og eru tveir erlendir leikmenn á lista sem eru aðeins gjaldgengir í Smáþjóðaleikunum. Aðeins er einn nýliði í hópnum, Halldór Ingi Kárason frelsingi úr Þrótti Reykjavík.
Ísland leikur í E riðli undakeppni HM innan Evrópu sem verður í Halmstad í Svíþjóð. Mótherjar liðsins eru Svíar, Grikkir og Norðmenn. Ísland hefur aldrei leikið landsleik gegn Grikklandi en liðið lék gegn Svíþjóð a.m.k. árið 1986 og íslenska karlalandsliðið lék sinn fyrsta landsleik einmitt gegn Norðmönnum í Íþróttaskemmunni á Akureyri árið 1974.
Að móti loknu í Svíþjóð heldur liðið áfram för sinni á Smáþjóðaleikana í Luxemborg þar sem liðið mætir heimamönnum, Kýpur, San Marino og Monakó.
Karlalandslið Íslands vorið 2013
Valgeir Valgeirsson, Þrótti Nes
Kristján Valdimarsson, Marienlyst
Lúðvík Már Matthíasson, HK
Ingólfur Hilmar Guðjónsson, HK
Orri Þór Jónsson, HK
Róbert Karl Hlöðversson, Stjörnunni
Hafsteinn Valdimarsson, Marienlyst
Alexander Stefánsson, HK
Kjartan Fannar Grétarsson, Þrótti Reykjavík
Vignir Þröstur Hlöðversson, Stjörnunni
Reynir Árnason, Aftureldingu
Halldór Ingi Kárason, Þrótti Reykjavík
Piotr Kempisty, KA
Filip Szewczyk, KA
Matthías og Apostol búnir að verja HM-liðin
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið







Salah skrifar undir tveggja ára samning við Liverpool
Enski boltinn

Leikmenn sem gætu blómstrað á nýjum stað
Íslenski boltinn

„Stöð 2 Sport er enski boltinn“
Enski boltinn

Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið
Íslenski boltinn