Þetta verður þriðji bardagi Gunnars í UFC en hann átti að berjast við Mike Pyle í Las Vegas þann 25. maí í fyrra en þurfti að draga sig úr keppni vegna meiðsla. Hann fór síðan í aðgerð stuttu síðar þar sem í ljós kom að hann var með rifinn liðþófa í hné.
„Mér líst bara vel á þennan bardaga. Ég hef horft á síðustu tvo bardaga með honum og hann virkar bara helvíti góður. Örugglega nokkuð höggþungur, viltur standandi og teknískur í gólfinu enda Sambó-meistari. Hann er svolítill Rússi í sér," segir Gunnar Nelson um verðandi andstæðing.
„Sambóstíllinn er svolítið sérstakur, hvernig þeir kýla og hvernig þeir haga sér í jörðinni. Ég hef æft með mörgum Sambómönnum og líka keppt við þá. Hann er annars örugglega mjög góður annars væri hann ekki þarna.“
Gunnar hefur unnið ellefu MMA bardaga og gert eitt jafntefli á ferli sínum en aldrei tapað.

Akhmedov er 26 ára og fæddur í bænum Kizlyar í Dagestan. Hann reyndi fyrst fyrir sér sem atvinnumaður í blönduðum bardagalistum í júlí árið 2010.
Hann gerði fjögurra bardaga samning við UFC í september síðastliðnum. Fyrsti bardagi hans í UFC var gegn Thiago Perpétuo í nóvember síðastliðnum. Kapparnir létu höggin dynja á hver öðrum en að lokum hafði Akhmedov betur með rothöggi.
Hann var síðan verðlaunaður fyrir besta bardaga kvöldsins. Eftir bardagann óskaði Akhmedov eftir því að verða færður niður í veltivigt - sama þyngdarflokk og Gunnar er í.
Hann hefur meðal annars tvisvar unnið rússnesku pankration-keppnina sem og Dagestan Sambo-keppnina.
Gunnar þurfti ekki aðeins að fara í aðgerð á liðþófa heldur lenti hann líka í bílslysi í október. Litlu mátti muna að illa færi fyrir bardagakappanum. „Ég er stálsleginn eftir þetta allt saman. Ég fékk smá skurði á hendina en þeir eru löngu grónir,“ segir Gunnar.

„Við erum líka mjög ánægðir með að hann taki þátt í einum af aðalbardögum kvöldsins þar sem hann er að koma úr meiðslum. Þeir eru báðir ósigraðir og þetta verður örugglega hörkubardagi," segir Haraldur.
„Þessi andstæðingur hefur barist alla sína bardaga í millivigt og er stór og sterkur. Hann sýndi það síðast að hann er ekki bara góður glímurmaður heldur líka góður standandi. Hann sýndi það með rothöggi gegn mun stærri andstæðingi í síðasta UFC-bardaga.“
Að sögn Haraldar mun Gunnar líklega undirbúa sig að mestu leyti hér heima. „Við erum stundum spurðir hvort við séum með einhverjar æfingabúðir en Gunnar hefur aldrei gert það þannig. Við höfum hins vegar fengið menn í heimsókn. Það voru til dæmis tveir Írar sem komu hingað til að æfa með Gunnari fyrir skömmu en þeir eru farnir af landi brott," segir Haraldur.
„Ég geri ráð fyrir að Gunnar fari til Írlands í janúar og kannski til New York. En við reiknum með að seinni hlutinn af æfingaferlinu verði meira og minna hér heima. Við eigum jafnvel von á því að það komi einhverjir í heimsókn, jafnvel Cathal Pendrel og jafnvel einhverjir fleiri frábærir æfingafélagar," segir Haraldur. "Strákarnir hérna heima eru líka margir hverjir orðnir mjög góðir, eins og þeir sýndu þegar þeir börðust í Dublin fyrir ekki svo löngu. Gróskan í Mjölni er mikil. Nú þurfum við bara að fá amatör MMA-keppni hér heima. Það er það sem okkur vantar.“
Hér að neðan má sjá myndband af bardögum Akhmedov.