Söngleikur Verslinga talinn klámfenginn [email protected] skrifar 2. febrúar 2013 09:00 umdeild ádeila Myndband úr söngleiknum VÍ Will Rock You, sem Versló setur upp, er umdeilt. Björk Jakobsdóttir, leikstjóri verksins, kveðst montin af verkinu og segir það ádeilu á staðlaðar kynjaímyndir. Hér má sjá Teit Gissurarson í hlutverki Galileó Fígaró og Sigurbjörn Ara Sigurbjörnsson í hlutverki Rikka. „
Já, ég hef orðið vör við gagnrýnina. Þessi viðbrögð koma mér dálítið á óvart en ef ég set mig í spor þeirra sem ekki hafa séð leikritið í heild skil ég að myndbandið gæti virkað stuðandi á suma. En ég stend við bakið á verkinu,“ segir Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri söngleiksins VÍ Will Rock You, sem Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands setur upp í Austurbæ. Tónlistarmyndband úr sýningunni má nú finna á vefsíðunni Youtube og hefur það hlotið nokkra gagnrýni. Á samfélagsmiðlum er myndbandið meðal annars sagt klámfengið og ákveðin tímaskekkja. Björk er þessu ósammála og segir verkið ádeilu á íslenskt samfélag eins og það var fyrir hrun. „Þetta er ádeila á staðlaðar kynjaímyndir. Við byrjum í útskrift í Versló og síðan er farið yfir í Glitlandsbyr og þangað kemur ráðgjafateymið Killer Queens frá Cayman-eyjum sem eru hálfgerðar „slöts“ og ætla með brögðum að taka yfir bankann. En miðpunktur sögunnar er falleg ástarsaga tveggja drengja. Mér þykir voða leiðinlegt ef þetta hefur snert viðkvæmar taugar hjá einhverjum og ég hvet alla til að koma og sjá sýninguna og dæma svo. Að mínu mati er ekki verið að hlutgera konur í verkinu og sjálf er ég gallharður jafnréttissinni.“ Spurð hvort henni finnist dansatriðið hæfa menntaskólaleikriti segir Björk atriðið ekki stuða hana á nokkurn hátt. „Sonur minn er í sýningunni og myndbandinu og kannski er ég bara svona líbó, en ég þekki líka ádeiluna og húmorinn í verkinu. Mér finnst þau [krakkarnir] töff og flott og ég get ekki gert að því þó sumar stelpurnar vilji vera í diskóbuxum. Ég get alveg viðurkennt að þær eru full „sassy“ en það er ekkert sem kemur úr þessu myndbandi heldur myndböndum sem þau hafa verið að horfa á frá því þau voru börn,“ segir Björk og bætir við að lokum: „Ég er mjög montin af þessari leiksýningu og held ég sé að senda mjög falleg skilaboð til unglinga um að þau hafi frelsi til að elska þann sem þau vilja.“
Menning Mest lesið Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Lífið Sjóðheit stemning í eftirpartýi Flóna Lífið Bubbi byrjaður á hugvíkkandi efnum Lífið 38 ára hreinn sveinn: Er til leið út úr þessum vítahring? Lífið Skuggavaldið: Samsæriskenningum aldrei verið beitt svona áður Lífið Rappar um vímu Lífið Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Lífið Ísraelar þekkja ásakanir um stuld af eigin raun Lífið Fleiri fréttir Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira