

Byggðin sem gleymdist
Þetta hryggir mig og veldur mér áhyggjum, því byggðamál og áhugi minn og ástríða mín fyrir þeim er hvatinn fyrir því að ég ákvað að stökkva inn á pólitíska sviðið og bjóða mig fram með Lýðræðisvaktinni í komandi kosningum.
Byggðastefna stjórnvalda þarf ekki að vera flókin til að vera góð. Hún þarf aðeins að byggjast upp á heildstæðum lausnum, en ekki sértækum plástrum. Það höfum við haft að leiðarljósi við gerð byggðastefnu Lýðræðisvaktarinnar.
Grunnþjónusta í heimabyggð
Fyrir það fyrsta þarf að færa grunnþjónustuna aftur til landsbyggðarinnar. Það þarf að vinda ofan af þeirri þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár og áratugi, sem gengur út á að færa alla helstu grunnþjónustu burtu frá fólkinu í landinu. Það felst til að mynda engin hagræðing í því fyrir fólkið í landinu að þurfa að sækja alla sjúkraþjónustu til höfuðborgarinnar. Lýðræðisvaktin vill efla alla grunnþjónustu í heimabyggð.
Frjálsar strandveiðar
Þá viljum við að sveitarfélög landsins njóti nálægðar við auðlindir sínar og fái af þeim réttmætan arð. Strandveiðar eru mikil lyftistöng fyrir sjávarþorp landins og við viljum efla þær enn frekar með því að gera þær frjálsar að fullu og allan fisk á markað.
Ákvörðunarrétt til heimamanna
Það þarf að styrkja sveitarstjórnirnar og sjálfstæði þeirra þannig að ábyrgð, fjárráð og ákvarðanatökur færist til þeirra. Það er mikilvægt að heimamenn hafi fullt vald yfir þeim ákvörðunum sem þá snertir. Ákvarðanir þarf að byggja á þekkingu heimamanna.
Skattaafslátt til nýsköpunar
Að lokum þarf að efla nýsköpun á landsbyggðinni og ýta undir hana með skattaafslætti á upphafsárum nýrra fyrirtækja á landsbyggðinni. Það þarf að gera landsbyggðina að vænlegum kosti fyrir frumkvöðla til að skapa sér og öðrum atvinnu. Einnig er mikilvægt að skapa aðstæður fyrir ungt fólk til að koma heim að námi loknu og skapa sér störf sem byggja á menntun þess.
Landsbyggðin þarf enga vorkunn eða ölmusu. Hún þarf frið frá stjórnvöldum til að byggja sig upp innan frá. Það þarf að gefa landsbyggðinni tækifæri til að skapa sína eigin framtíð á hennar eigin forsendum. Vera sjálfbjarga.
Frekari útfærslur á byggðamálum má sjá á heimasíðu Lýðræðisvaktarinnar: xlvaktin.is
Skoðun

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar