Matur

Helgarmaturinn - Léttsaltaðir þorskhnakkar með kartöflumús og tómatbasilikusósu

Girnilegur og hollur réttur
Girnilegur og hollur réttur

Fyrir 2-4

2-4 þorskhnakkar (u.þ.b. 300 g hver),

egg,

salt,

pipar,

Lamb Islandia-krydd (Pottagaldrar),

heilhveiti,

mascarpone-ostur,

kartöflur,

möndlur,

hakkaðir tómatar (í dós),

skalottlaukur,

hvítlaukur,

fersk basilíka,

basilíkugljái,

parmaskinka,

gufusoðið grænmeti eftir smekk (t.d. sykurbaunir).

Byrjið á kartöflumúsinni. Kartöflur eru soðnar og stappaðar, einu eggi bætt út í og einnig mascarpone-osti úr öskju, ásamt salti, pipar og Lamb Islandia-kryddi.

Saltfiski er velt vel upp úr heilhveiti með pipar í, eggi og síðast möndlum sem hafa verið malaðar vel í matvinnsluvél (eða með töfrasprota). Saltfiskurinn er steiktur á pönnu í smá stund og því næst settur í ofnskúffu þar sem parmaskinka er sett ofan á hvert stykki. Bakið í ofni og fylgist vel með á meðan.

Sósa er löguð með því að mýkja þrjá skalottlauka og tvö meðalstór hvítlauksrif í potti með olíu. Einni dós af hökkuðum tómötum er bætt út í. Svo er pipar, salti og skvettu af basilgljáa bætt út í og látið malla í rúmar 10 mínútur. Þá er nauðsynlegt að bæta út í sósuna góðri lúku af saxaðri ferskri basilíku.

Rétturinn er settur á hvern disk, fyrst kartöflumúsin, svo fiskbiti ofan á og sósan yfir allt. Það er líka gott að hafa eina tegund af gufusoðnu grænmeti til hliðar á diskinum, t.d. sykurbaunir sem er rétt búið að „svissa“ á pönnu í olíu og salt og pipar stráð yfir það.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.