Ronaldo sá rautt í jafntefli Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. febrúar 2014 00:01 Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo fékk beint rautt spjald í 1-1 jafntefli Real Madrid gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Madrídarmenn vissu að með sigri gætu þeir komist upp fyrir Barcelona, stigi á eftir Atletico Madrid í toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar. Það var jafnræði með liðunum í leiknum en gestirnir frá Madrid náðu forskotinu um miðbik seinni hálfleiks. Ronaldo átti þá fyrirgjöf sem Jese renndi í netið en Jese var í liðinu í stað Gareths Bale sem er meiddur. Ibai Gomez átti sannkallaða drauma innkomu fyrir Bilbao tíu mínútum seinna, aðeins örfáum sekúndum eftir að hann kom inná hafði hann skorað jöfnunarmarkið. Boltinn barst út á vítateig gestanna þar sem Ibai var mættur og smellti boltanum í hornið, stöngin-inn. Ronaldo fékk afar ósanngjarnt rautt spjald aðeins örfáum mínútum síðar, ýtt var við Ronaldo sem lagði hönd sína á andlit Gurpegi, varnarmanns Bilbao. Við þetta fleygði Gurpegi sér í jörðina og liðsfélagi hans, Ander Iturraspe virtist reyna að skalla Ronaldo en dómari leiksins rak Ronaldo í sturtu og sleppti Iturraspe með gult spjald. Þrátt fyrir að vera manni fleiri náðu heimamenn ekki að bæta við marki og lauk leiknum því með jafntefli. Stigið gerir lítið fyrir Bilbao en Real Madrid komst upp að hlið Barcelona með jafnteflinu, þremur stigum á eftir nágrönnunum í Atletico Madrid.Vísir/Getty
Spænski boltinn Mest lesið Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Fleiri fréttir Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Sjá meira