
Hversu mikilvæg er mentun?
Fyrirsögnin á þessari grein er spurning sem svarar sér sjálf: Já, menntun er mikilvæg - og já, ég veit hvernig „menntun“ er skrifað.
En spurningin er kannski frekar: Hvernig er mikilvægið mælt?
Nýafstöðnu PISA prófin (sem allir eru líklega fullsaddir á að ræða) sýna okkur margar áhugaverðar niðurstöður, bæði góðar og slæmar. Og þá auðvitað í samanburði við aðrar þjóðir, því til þess er mælingarleikurinn gerður. Þær jákvæðustu eru hversu vel líðan nemenda okkar mælist. En á móti koma sláandi niðurstöður um læsi þeirra.
Finnar skora lang hæst Norðurlandanna, sem er ansi magnað þar sem þeir hafa farið algerlega á móti algengum „reddingum“ þegar kemur að skólastarfi: Þar eru engar samræmdar námsskrár og engin samræmd próf. Í raun eru próf þar í algeru lágmarki.
Hefði ég þreytt PISA próf þegar ég var unglingur væri ég án efa í hópi þeirra sem teljast ekki geta lesið sér til gagns. Og ekki bara vegna þess að ég var reglulega á fylllerí með þeim 40% unglinga sem sem drukku á þessum tíma.
Í dag er þessi prósenta unglingadrykkju komin niður í 3%, en lestrarvandinn er sá sami. Og í dag á ég sjálfur dreng á 13. aldursári sem er í mikilli hættu á að vera hluti af þeim þriðjungi drengja okkar sem teljast ekki geta lesið sér til gagns.
En hann getur lesið sér til gamans. Eins og ugla á koffíntrippi spænir hann í sig þær bækur sem hann sjálfur hefur áhuga á.
Áhugi er einmitt lykilorðið hérna, því ekki eru þetta metnaðar- og áhugalaus börn. Þvert á móti þá er þau uppfull af áhuga, ástríðu og krafti, sem því miður spanderast of mikið utan skólastofunnar á alla þá menningu og ómenningu sem flæðir inn í landið í gegnum sæstrengi og gervihnetti.
Þó að foreldrar hafi oft réttmætar áhyggjur af skjátíma barna sinna, þá hafa börn sjaldan eða aldrei komist í jafn mikla snertingu við texta og fræðsluefni og einmitt sú kynslóð sem er að alast upp núna, enda flæðir þetta fyrir augum þeirra alla daga eins og tölvukóðar úr The Matrix.
Þetta er hópur sem er svo sólgin í menningu að þau halda sér heima öll kvöld og neyta hennar í stað þess að drekka vín og reykja sígarettur eins og mín kynslóð gerði.
Ég þori næstum því að hengja mig upp á það að ef þeir nemendur sem teljast ekki geta lesið sér til gagns samkvæmt PISA prófunum myndu þreyta prófin á ensku, þá flygu þeir í gegn!
Eitt það sterkasta í Finnska menntakerfinu er sú jákvæða mynd sem menntun hefur og kennaranám er vinsælasta nám ungs fólk þar. Jafnvel vinsælla en læknis- og lögfræðinám.
Þetta er ekki bara vegna þess að kennaranám þeirra er í heimsklassa og að þeir borga mannsæmandi laun, heldur hafa kennarar þar frelsi til að hafa áhrif á eigin námsefni og prófanir. Og það er svo mikilvægt, því kennarar hefja starf sitt í þeirri von að miðla þekkingu og ástríðu. Og í Finnlandi hafa þeir frelsið til að gera það.
Sveigjanleiki, frelsi og fjölbreytni eru þau lykilorð sem ég set alla mína trú á. Kennarar þurfa sveigjanleika vegna þess að hver nemandi er einstakur og það gildir ekki sama fyrir alla. Sveigjanleiki til að koma til móts við þá sem dragast aftur úr, jafn og við þá sem taka fram úr.
Ef kennarar eiga ekkert í eigin kennsluefni og kennsluaðferðum þá hverfur sú ástríða fyrir starfinu sem er þeim svo nauðsynleg til að þess einmitt að vekja áhuga hjá nemendunum. Eins ættu nemendur að eiga í námsefni sínu sjálfir, því annars þykir þeim efnið einfaldlega ekki koma sér við. Þetta eru Finnar með á hreinu. Þú æfir ekki upp keppnislið til þess eins að sigra medalíu bara á vissum mótum. Ekkert frekar en þú kennir nemendum til þess eins að standa sig vel í vissum prófum. En ef þú leggur réttan grunn að menntuninni og hvetur nemendur til þáttöku með metnaði og ástríðu, þá munu próf þeirra líka koma vel út, því innistæðan er fyrir hendi.
Menntun er ekki keppnisíþrótt.
Mikilvægi þess að kunna að skrifa orð eins og menntun rétt felst ekki í því að koma vel út í samanburði við aðra. Mikilvægin snýr að nemendunum sjálfum, því hún er grunnurinn af því að þeir geti gert það sem vilja við líf sitt: Það sem þeir hafa áhuga á að gera.
Og það er mikilvægt.
„Ef börn geta ekki lært eins og við kennum ættum við ef til vill frekar að kenna eins og þau læra.“
Skoðun

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar

Hin raunverulega byggðastefna
Jón Þór Kristjánsson skrifar

Sameining Garðabæjar og Hafnarfjarðar – kostir – ókostir - skynsemi
Ó. Ingi Tómasson skrifar

Rúmir 30 milljarðar í fangelsi
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Sérstök staða orkusveitarfélaga!
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Miklar endurbætur á lánum menntasjóðs námsmanna
Elín Íris Fanndal skrifar

Drögum úr fordómum í garð Breiðholts
Alex Vor Ólafs,Jörundur Þór Hákonarson,Theodóra Líf Reykdal skrifar