Halldór Orri nýtti fyrsta alvöru tækifærið vel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2014 19:14 Halldór Orri Björnsson. Vísir/Daníel
Halldór Orri Björnsson lagði upp jöfnunarmark Falkenberg-liðsins þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Gefle í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Halldór Orri Björnsson hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Henke Larsson, þjálfara Falkenberg, í fyrstu leikjum sínum með Falkenberg en hann nýtti tækifærið vel í kvöld. Halldór Orri var aðeins búinn að spila í 35 mínútur í fyrstu sjö leikjum Falkenberg en Henke setti hann inn á völlinn á 56. mínútu í kvöld þegar liðið var 0-1 undir á heimavelli. Halldór Orri lagði upp jöfnunarmarkið fyrir Carl-Oscar Andersson og átti því mikinn þátt í því að liðið náði í stig í þessum leik. Arnór Smárason og félagar í Helsingborg tapaði 1-2 fyrir AIK á sama tíma en liðið spilaði manni færri í 70 mínútur og missti íslenska landsliðsmanninn meiddan af velli. Arnór var í byrjunarliðinu en þurfti að fara af velli vegna meiðsla á 29. mínútu eða aðeins níu mínútum eftir að liðið missti miðvörðinn Carl Johansson af velli með rautt spjald. Celso Borges kom AIK í 1-0 á 44. mínútu en David Accam jafnaði fyrir tíu menn Helsingborg á 70. mínútu. Henok Goitom skoraði sigurmarkið á 87. mínútu leiksins.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Í beinni: Frakkland - Ísland | Þyngsta prófið fyrir Ísland Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Chelsea - Southampton | Botnliðið mætir á Brúna Í beinni: Frakkland - Ísland | Þyngsta prófið fyrir Ísland Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Sjá meira