Skoðun

Setjum börnin í fyrsta sæti

Karl Pétur Jónsson skrifar
Íslendingar hafa undanfarin misseri ekki haft margar ástæður til að gleðjast yfir skólamálum þegar horft er til árangurs íslenskra barna í könnunarprófum PISA.  Útkoman hefur farið dalandi sé litið yfir þróun síðustu ára og er það mjög miður. Ánægja kennara með kjör sín og starfsumhverfi hefur dalað verulega.

Þó eru ljós í þessu myrkri og meðal þeirra er árangur einstakra skóla. Skólinn okkar á Seltjarnarnesi er ein af þessum týrum í myrkrinu. Árangur barna á Seltjarnarnesi hefur haldist jafn og góður á undanförnum árum og aðrar samræmdar mælingar á líðan og árangri barna á Seltjarnarnesi benda til þess að Grunnskóli Seltjarnarness sé í fremstu röð hér á landi.

Þessu fagna ég sem foreldri tveggja grunnskólabarna og tveggja leikskólabarna sem munu hefja skólanám á næstu árum. En er nóg að vera með þeim skástu af skussunum? Skólakerfi Íslands tekur sér æ lakari stöðu í samkeppni þjóðanna um menntun fyrir börn. Á sama tíma aukast möguleikar komandi kynslóða á að sækja sér menntun til annarra landa og starfa um hríð eða til lengri tíma í alþjóðlegu umhverfi.

Samkeppnin sem þetta unga fólk framtíðarinnar mun mæta eru ungmenni sem hlotið hafa sína menntun í skólakerfum þar sem betri árangur næst og meira fé er varið til menntunar.

Með því að kasta til hendinni við menntun komandi kynslóða minnkum við samkeppnishæfni þeirra og á sama tíma hæfni samfélagsins alls til að keppa við aðrar þjóðir. Á þetta er meðal annars bent í ágætri skýrslu McKinsey sem gefin var út á síðasta ári.

Róttækra aðgerða er þörf til að snúa við þessari þróun. Einhverstaðar verður að byrja og Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi hefur ákveðið að ekki dugir að vera með þeim bestu á Íslandi. Stefna verður hærra. Haldi flokkurinn þeim styrk sem hann hefur haft í bæjarstjórn á Nesinu verður lagt af stað í vegferð sem tryggja á að þróun skólastarfs verði með þeim hætti að foreldrar geti gengið að því vísu á Nesinu að þar sé, ef ekki með bestu skólum landsins, þá sá allra besti. Markmið okkar er að skólinn okkar geti ekki aðeins keppt við aðra skóla hérlendis um gæði náms, heldur einnig alla skóla allstaðar.

Breytingar þurfa að byrja einhverstaðar, hvers vegna ekki á Seltjarnarnesi, þar sem allar aðstæður eru til hendi – góður skóli, jákvætt hugarfar, vel rekið bæjarfélag, gott samfélag foreldra og kraftmiklir krakkar. Við setjum börnin í fyrsta sæti.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×