
Jákvæður skólabragur og styðjandi námsumhverfi
Mikil umræða hefur verið um stöðu grunnskólans eftir að niðurstöður PISA-könnunarinnar komu út og allir líklega sammála um að vilja gera betur í samanburði við önnur lönd. Nemendur í Grunnskóla Seltjarnarness koma almennt vel út úr PISA-rannsókn OECD og er staðan að jafnaði betri en hún mældist árið 2000. Mælingar sína jákvæða þróun lesskilnings og læsis á tímabilinu frá 2000 til 2012. Nemendur skólans standa nú jafnfætis jafnöldrum sínum á Norðurlöndunum og því sem almennt gerist á höfuðborgarsvæðinu, en stóðu þeim talsvert að baki við upphaf tímabilsins. Við upphaf tímabilsins mældist læsi á stærðfræði meðal nemenda á Seltjarnarnesi sambærilegt við nemendur á Norðurlöndunum, en í könnuninni árið 2012 mælist það nokkuð yfir meðaltali þeirra. Læsi á náttúrufræði var fyrst kannað árið 2006 og mældust nemendur á Seltjarnarnesi þá talsvert undir jafnöldrum sínum á Norðurlöndunum en í könnuninni 2012 hefur bilið minnkað nokkuð. Grunnskóli Seltjarnarness kom mjög vel út ef við skoðum niðurstöður m.v. landsmeðaltal hér á Íslandi, en í samanburði við önnur lönd viljum við gera betur.
Jákvætt viðhorf til náms og trú á eigin getu
Í PISA-rannsókninni 2012 var einnig lagt mat á viðhorf og námshegðun nemenda. Niðurstöður sýna að nemendur á Seltjarnarnesi hafa almennt jákvæðara viðhorf til náms og meiri trú á eigin getu þegar kemur að stærðfræði en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum. Jafnframt að áhugi nemenda á Seltjarnarnesi á stærðfræði hefur aukist stöðugt frá árinu 2003 og sjálfstraust eflst. Einnig kom í ljós að á Seltjarnarnesi er mun meira um styðjandi kennsluhætti en almennt gerist og að skólinn er kominn hvað lengst í leiðsagnarmati.
Í samræmdum könnunarprófum kemur Grunnskóli Seltjarnarness mjög vel út sérstaklega ef horft er til árangurs 10. Bekkjar. Ef horft er til meðaltals síðustu 5 ára þá er 10. bekkur í Grunnskóla Seltjarnarness í 1. sæti af 60 skólum í stærðfræði, í 5. sæti af 60 skólum í íslensku og í 2. sæti af 60 skólum í ensku. 7. bekkur er í 4. sæti af 61 skóla þegar horft er á stærðfræði, og í 6. sæti af 60 skólum landsins í íslensku. 4. bekkur er í 12. sæti af 61 skóla þegar horft er til stærðfræði og í 10. sæti af 61 skóla í íslensku.
Í samræmdum prófum er einnig horft til framfara í námi og er reiknaður framfarastuðull út frá einkunnum nemenda á tveimur samræmdum prófum. Er því annars vegar skoðuð frammistaða einstaklingsins milli 4. – 7. bekkjar og hins vegar milli 7. -10. bekkjar og horft til virðisauka í náminu.
Í skýrslu Námsmatsstofnunar kemur fram að virðisauki námsins síðustu 5 árin i Grunnskóla Seltjarnarness eru í öllum tilfellum í hærri kantinum sem þýðir að nemendur Grunnskóla Seltjarnarness eru að bæta stöðu sína miðað við jafnaldra sína sem er það sem við viljum sjá gerast.
Góður andi meðal nemenda og gott samband nemenda og kennara
Við mælum einnig líðan nemenda okkar í Grunnskóla Seltjarnarness. Samsömun nemenda á Seltjarnarnesi við nemendahópinn hefur stóraukist frá fyrri mælingum PISA-rannsókna og samband nemenda við kennara er mjög jákvætt og stuðningur kennara við nemendur er með því besta sem gerist. Þessar niðurstöður eiga samhljóm við niðurstöður Skólapúlsins á líðan og viðhorfum nemenda, en þær sýna að líðan mælist hvað best á landsvísu meðal nemenda á Seltjarnarnesi og samband nemenda og kennara er talsvert betra en almennt gerist. Í Skólapúlsinum eru gerðar kannanir meðal nemenda í 6.-10. bekk í fjölmörgum grunnskólum hér á landi í hverjum mánuði um m.a. ánægju af náminu, trú á eigin námsgetu, sjálfsálit, vellíðan, tíðni og tegund eineltis, samband nemenda við kennara, hreyfingu og mataræði svo nokkrir þættir séu nefndir. Niðurstöður mælinga sýna að nemendum í Grunnskóla Seltjarnarness líður vel, einelti hér er vel undir meðallagi, þau hafa mikla trú á eigin námsgetu og finnst þau hafa góða stjórn á eigin lifi og á eigin árangri í skólanum.
Jákvæð úttekt á starfi skólans
Menntamálaráðuneytið gerði úttekt á Grunnskóla Seltjarnarness vorið 2012 að ósk skólans, fræðslustjóra og skólanefndar. Niðurstöður úttektaraðila voru þær að við skólann fari fram mjög faglegt og gott skólastarf. Skólastarfið hvíli á herðum hæfra og reynslumikilla starfsmanna, góður andi og opin samskipti meðal starfsmanna og almenn ánægja með aðgengi að stjórnendum skólans. Foreldrastarf sé mjög gott við skólann og skapi mikilvægt bakland fyrir faglegt starf, að mati bæði stjórnenda og kennara, að nemendur virðast almennt ánægðir í skólanum, félagslíf mjög gott og gætt er að hagsmunum nemenda t.a.m. með starfsemi nemendaverndarráða og nemendaráðs.
Við getum því verið stolt af því góða starfi sem fer fram í grunnskóla Seltjarnarness og viljum styðja við það góða starf sem þar er unnið. En við viljum að sjálfsögðu ávallt stuðla að því að gera betur og hefur skólinn lagt sig fram um að fylgjast með nýbreytni í skólastarfi sem sýnt hefur að skilar sér í betri árangri. Má þar nefna byrjendalæsi sem tekið hefur verið upp í þeirri viðleitni að stuðla að betra læsi nemenda sem fyrst á skólagöngunni.
Áskorun skólasamfélagsins er að halda stöðu sinni þar sem vel gengur og bæta það sem betur má fara og okkar að styðja við.
Skoðun

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar