„Hann er mjög óhefðbundinn bardagamaður, góður í að ná mönnum niður þar sem hann er sterkur. Við erum svipaðir að mörgu leyti hvað varðar það að við viljum berjast á jörðinni og ég held að ég sé betur undirbúinn en fyrrum keppinautar hans. Það má búast við frábærum bardaga.“
Cummings hefur eytt miklum tíma í að undirbúa sig fyrir bardagann.
„Ég fékk til liðs við mig þrefaldan meistara í Jui-Jitsu til þess að vera betur undirbúinn undir glímubrögð Gunnars. Ég hef reynt að skoða alla bardaga Gunnars og sjá hvað hann gerir svo hann geti ekki komið mér á óvart í bardaganum. Ég tel að bardaginn muni ráðast á hver hefur betur í litlu hlutunum.“
Líklegt er að Cummings verði 10-15 kílóum þyngri en Gunnar þegar bardaginn fer fram en hann telur að það muni ekki hafa áhrif.
„Gunnar er að manni finnst alltaf minni og léttari fyrir bardagana svo það á ekki eftir að hafa jafn mikil áhrif og fólk gerir ráð fyrir. Hann hefur lent í þessu áður en ég er mun sterkari en ég lít út fyrir að vera og ég get vonandi nýtt mér það.“
Talið er að áhorfendurnir í Dublin verði á bandi Gunnars en Cummings ætlar ekki að láta slíkt trufla sig.
„Stemmingin á ekki eftir að hafa áhrif. Ég er vanur því að berjast þar sem andstæðingurinn er á heimavelli og það hefur engin áhrif á mig. Gunnar verður líklegast sá sem aðdáendurnir eiga eftir að styðja en ég reyni að notfæri mér það og mun ekki láta baul hafa áhrif á mig,“ sagði Cummings.
Gunnar Nelson mætir Zak Cummings í Dublin á laugardagskvöld. Þessi stórbardagi verður í beinni á Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 19:00. Fáðu þér áskrift á www.365.is.