Alfreð með tvö fyrstu mörkin sín fyrir Real Sociedad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2014 22:50 Alfreð Finnbogason. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason opnaði markareikning sinn hjá Real Sociedad í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á c-deildarliðinu Oviedo í 32 liða úrslitum spænska Konungsbikarsins. Oviedo og Real Sociedad gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum sem fór fram á heimavelli Oviedo. Real Sociedad vann því samanlagt 2-0. Alfreð skoraði fyrra mark sitt á 27. mínútu leiksins með vinstri fótar skoti eftir sendingu Pablo Hervías en það síðara skoraði Alfreð á 61. mínútu þegar hann fylgdi eftir skoti félaga síns. Alfreð fékk síðan heiðursskiptingu á 83. mínútu leiksins. David Moyes stillti upp í leikkerfinu 4-2-3-1 og var Alfreð fremstur með þá Sergio Canales, David Zurutuza og Pablo Hervías fyrir aftan sig. Alfreð var fyrir leikinn búinn að spila þrettán leiki í öllum keppnum með Real Sociedad án þess að ná að skora. Tíu af þessum leikjum voru í spænsku úrvalsdeildinni. Alfreð fékk stuðningsyfirlýsingu frá David Moyes fyrir leikinn og það er ljóst á öllu að það hefur gefið okkar manni sjálfstraust til að brjóta ísinn og skora sitt fyrsta mark fyrir Real Sociedad.
Spænski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Sjá meira