Markaveisla hjá Messi-lausu Barcelona-liði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2014 22:15 Pedro Rodríguez fagnar einu marka sinna í kvöld. Vísir/AFP
Barcelona er komið í sextán liða úrslit spænska Konungsbikarsins eftir 8-1 stórsigur á C-deildarliðinu SD Huesca. Barcelona vann því samanlagt 12-1. Pedro Rodríguez fékk tækifærið í framlínu Barcelona og nýtti tækifærið vel með því að skora þrennu á 24 mínútna kafla í fyrri hálfleiknum. Barcelona var í fínum málum eftir 4-0 útisigur í fyrri leiknum en Pedro skoraði eitt mark mörkum liðsins í þeim leik. Lionel Messi fékk hvíld í kvöld alveg eins og félagar hans í sóknarlínunni Luis Suarez og Neymer en það skipti ekki miklu máli fyrir Barcelonaliðið sem var komið í 5-0 í fyrri hálfleiknum. Pedro Rodríguez skoraði fyrsta markið með skalla á 20. mínútu eftir sendingu frá Munir og sex mínútum var Pedro búinn að skora aftur eftir að hafa tekið sendingu Andrés Iniesta vel með sér. Sergi Roberto skoraði þriðja markið á 29. mínútu eftir fyrirgjöf frá Martín Montoya og á 39. mínútu var komið að Andrés Iniesta efirr sendingu frá Sergi Roberto. Pedro innsiglaði þrennuna sína á 44. mínútu eftir að hafa fengið boltann frá Adriano. Hann var fyrsti Barcelona-maðurinn frá árinu 1968 til þess að skora þrennu í fyrri hálfleik í bikarleik. Pedro Rodríguez og Andrés Iniesta fóru af velli í hálfleik en Barcelona bætti við þremur mörkum í seinni hálfleiknum. Adriano Correia, Adama Traoré og Sandro Ramírez skoruðu þessi mörk. Carlos David minnkaði muninn fyrir SD Huesca þegar hann skoraði á 86. mínútu og lokatölurnar urðu því 8-1.
Spænski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Sjá meira