Lífið tók saman lista yfir nokkrar manneskjur sem hafa eytt milljónum í útlit sitt og hafa lagst undir hnífinn margoft.

Valeria Lukyanova, sem gengur einnig undir nafninu Mennska Barbie, var mikið á milli tannanna á fólki á árinu. Hún hefur orðið fyrir miklu aðkasti vegna útlits síns en hún segist halda mitti sínu mjóu með því að borða bara loft.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: Óljós.

Alina Kovalevskaya býr í sömu borg, Odessa í Úkraínu, og mennska Barbie og þráir það að líta út eins og hún.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: Óljós.

Justin Jedlica er búinn að fara í yfir 140 aðgerðir til að líkjast Ken-dúkku.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: 18,6 milljónir króna.

Auðvitað eru tvær Ken-dúkkur fyrst það eru tvær Barbie-dúkkur. Karlfyrirsætan Celso Santebanes hefur gert margt til að líkjast dúkku og hefur meira að segja látið búa til dúkku af sér.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: 6,3 milljónir króna.

Victoria fer í lýtaaðgerðir því hún vill líta út eins og kynlífsdúkka. „Mig dreymdi alltaf um að líkjast kynþokkafyllri dúkku með stór brjóst og brjálæðislega stórar varir. Ég elskaði hvernig dúkkur litu út og hve kynþokkafullar þær voru,“ segir Victoria.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: 5 milljónir króna.

Krystina Butel varð afbrýðisöm þegar hún sá skopmynd af sjálfri sér. „Hún var svo falleg. Hún var allt sem ég vildi vera," segir Krystina sem nú er með brjóst í stærð 36K.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: 18,7 milljónir króna.

Penny Brown fór í brjóstastækkun og er nú með brjóst í stærð 36O svo hún líkist meira teiknimyndafígúrunni Jessicu Rabbit. Penny er með Jessicu á heilanum og kæðist einnig lífsstykkjum til að minnka mittismál sitt.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: Óljós.
8. Konan sem vill vera eins og Kim KardashianMy own look make up by me embrace who u are xxx
A photo posted by claireleeson (@claireleeson_x) on Nov 11, 2014 at 11:13am PST
Claire Lesson fór í fjölmargar lýtaaðgerðir til að líkjast raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian og er nú stórskuldug.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: 3,7 milljónir króna.
9. Sænsku tvíburarnirFirst week done! We start really hard, with 2 workout/day and strict low calorie diet, to loose as much bodyfat as possible. We feel week but the bodyfat start to leave the body..next week we are waiting for some products who will change our body really fast... follow to see the results.... #firstweek#bodytransformation#bodychanges#follow4follow#fitness#striveforperfection#personaltrainer#hardwork#payoff#nevergiveup#twinfit#winner#changeyourmind#healthylife#gymrat#twins#tattooeddoll#fighters#results#thebegining#bikinifitness#muscle#grow#bodyfat#passion#life#letsgoforit
A photo posted by SaraKoponen (@sarakoponen13) on Jul 7, 2014 at 12:40pm PDT
Sænsku tvíburarnir Sara og Emma Koponen helga líf sitt því að æfa og fara í lýtaaðgerðir saman. Þær borða meira að segja nákvæmlega sama matinn á hverjum degi.
Áætlaður kostnaður lýtaaðgerða: 1,9 milljónir króna.