Skoðun

Ekkert niðurgreitt skyr til Evrópu

Guðni Ágústsson skrifar
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor ritar í Fréttablaðið 24. febrúar síðastliðinn grein sem ber yfirskriftina „Niðurgreitt skyr til Evrópu“. Hið rétta er að ekkert niðurgreitt skyr er í dag flutt til Evrópu. Um það yrði heldur ekki að ræða þótt okkur byðist að flytja út 4.000 tonn af skyri tollfrjálst til ESB-ríkja. Greinin byggir ekki á þeirri umhugsun sem prófessorinn kallar eftir heldur lýsir fyrst og fremst vanþekkingu á málefninu.

Á árinu 2013 var útgefinn mjólkurkvóti af stjórnvöldum 116 milljónir lítra. Framleiðslan nam hins vegar nærri 123 milljónum lítra. Umframmjólk ársins 2013 var því 7 milljónir lítra. Útgjöld úr ríkissjóði vegna beingreiðslna hefðu orðið hin sömu hvort sem framleiðslan nam 116 eða 123 eða jafnvel 130 milljónum lítra.

Útflutningur mjólkurvara árið 2013 nam samkvæmt opinberum tölum 5,7 milljónum lítra. Sá útflutningur samanstóð af undanrennudufti, ostum og skyri. Skyrútflutningur á árinu nam um 2,7 milljónum lítra mjólkur sem er einungis 40% af umframmjólk ársins.

Umframframleiðsla bænda, þar með talin sú mjólk sem fór í skyr, nýtur ekki beingreiðslna úr ríkissjóði. Í búrekstri þurfa bændur ávallt að framleiða umfram kvóta svo tryggt sé að þeir nái kvótanum vegna ófyrirséðra sveiflna eins og síðasta sumar sannaði. Afurðastöðvar taka við umframmjólk bóndans og leitast við að koma henni á erlenda markaði fyrir sem hæst skilaverð til bænda. Þar er ekkert tryggt fyrirfram og markaðurinn sem ræður. Enginn vara í útflutningi hefur þó skilað bændum eins góðu verði á erlendum mörkuðum og íslenska skyrið.

Eftirspurn á innanlandsmarkaði segir til hver framleiðsluþörfin er. Mikil spurn hefur verið eftir fitu en ekki að sama skapi eftir próteinþættinum. Vaxandi neysla á smjöri og rjóma kallar á fitu sem fæst með aukinni mjólkurframleiðslu. Þar með eykst framleiðsla á mjólkurpróteinum sem þarf að koma á markað. Skyrgerð og útflutningur á skyri er gott dæmi um slíka viðleitni.

Hagfræðiprófessorinn hefur skrifað nokkrar greinar um landbúnaðarmál að undanförnu og þær bera það með sér að hann hefur ekki hugsað þau til hlítar. Vonandi verður þetta litla tilsvar honum til umhugsunar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×