Skoðun

Sporin hræða

Ásdís Ólafsdóttir íþróttakennari skrifar
Hér eru nokkur atriði sem vert er að rifja upp nú fyrir væntanlegar bæjarstjórnarkosningar í Kópavogi, því kjósendur virðast mjög fljótir að gleyma eða eru blekktir, auk þess sem auglýsingar og gylliboð virðast hafa ótrúleg áhrif á kjósendur.



Nokkrar vangaveltur um flokkana sem stýrðu bænum síðastliðin tvö ár:

Sjálfstæðisflokkurinn með bæjarstjórann Ármann sem hefur setið í bæjarstjórn Kópavogs í 16 ár, þar af sem bæjarstjóri síðastliðin tvö ár, segist ætla að lækka skatta og greiða niður skuldir, sem hann átti allan þátt í að setja bæinn í, en þær eru yfir 40 milljarðar króna. Bæjarstjórinn og hirð hans eru nú búin að gefa svo mörg fjárskuldbindandi kosningaloforð og gera marga samninga, aðallega við íþróttafélögin, að allir viti bornir menn sjá að það er ógjörningur að lækka skatta og greiða niður skuldir á sama tíma.

Skuldirnar hljóta að aukast þegar á að byggja íþróttahús við Vatnsendaskóla vegna Gerplu, golfskála GKG (vilyrði), fótboltastúku og flóðlýsingu við Kórinn fyrir HK (er nú þegar á teikniborðinu), hús fyrir skógræktarmenn í Guðmundarlundi sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum vegna aðkomu „þungavigtarmanns“ í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi, og svona mætti lengi telja.

Þetta er gert á sama tíma og menn berja sér á brjóst og segja að ekki sé til fjármagn til að búa betur að skólum bæjarins, m.a. hvað varðar búnað og aðstöðu.

Y-listi Kópavogsbúa lofaði kjósendum fyrir fjórum árum að bæjarstjórinn yrði ekki pólitískt ráðinn og kusu margir listann vegna þess. Hann þverbraut það loforð ásamt fleiri prinsippum listans við myndun meirihluta með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn. Um helmingur fólks á listanum skildi við hann í kjölfarið. Flest þau sem urðu eftir eru nú gengin í Bjarta framtíð eins og „úlfur í sauðagæru“ og eru þar menn af Y-listanum í fremstu sætum, þar á meðal í öðru og þriðja sæti. Sú sem skipar efsta sæti Bjartrar framtíðar er nýfarin úr Sjálfstæðisflokknum, fór svo yfir til Y-listans og ætlaði í framboð með þeim, en lenti að lokum í Bjartri framtíð vegna þess að Y-listinn virðist ekki hafa treyst sér til að fara fram aftur, en séð góðan kost í Bjartri framtíð. Kannski er stefnt að nýjum meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.

Lítið er hægt að segja um aumingja Framsókn sem er að missa foringja sinn sem virðist vera mjög öflugur, því hann sér um alla fótboltavelli bæjarins ásamt hinu erfiða starfi sínu sem bæjarfulltrúi sem hann vill gera að fullu starfi, með hægri hendi, og bætti svo á sig forstöðumannsstarfi í Salasundlaug tímabundið með þeirri vinstri, vegna veikinda forstöðumanns. Gárungarnir í bænum segja þó, að hann hafi hug á að koma sér þar fyrir til framtíðar og styðji því Ármann bæjarstjóra, því gott er að eiga vin sem hefur völd.

Hugsið ykkur vel um áður en þið farið á kjörstað hvar þið krossið við því erfitt er að tryggja eftir á. Sporin eftir þessa þrjá flokka ættu að hræða. Skoðið þá flokka sem bjóða aðeins fram í Kópavogi og er ekki stjórnað af „stóra bróður“ á landsvísu. Svo virðist sem eini flokkurinn sem ræður sér sjálfur og lætur ekki aðra segja sér fyrir verkum sé Næstbesti flokkurinn (X – X) með Hjálmar Hjálmarsson sem oddvita.








Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×