Skoðun

Ungt fólk og tómstundir í Mosó

Sigrún Pálsdóttir skrifar
Það hefur vakið heimsathygli hvað tónlistarlíf á Íslandi er blómlegt og hafa erlendir blaðamenn oft haft á orði að fjöldi efnilegra tónlistarmanna hér sé í rauninni ótrúlegur miðað við mannfjölda.

Svona menningarverðmæti verða ekki til af sjálfu sér eins og dæmin sanna í Mosfellsbæ. Hér eru öflugar uppeldisstofnanir fyrir tónlistarfólk. Listaskóli Mosfellsbæjar fer þar fremstur, svo lúðrasveitin, skólarnir og kórarnir sem setja mikinn svip á bæjarlífið. Afraksturinn hefur verið framúrskarandi.

En erum við þá ekki bara í góðum málum? Að sumu leyti en ekki öllu. Eftir að tónlistarnámi lýkur í Listaskólanum er ekki í boði neitt æfingahúsnæði fyrir ungt fólk til að þróa áfram tónlist sína. Úr þessu þarf að bæta vilji sveitarfélagið styðja við bakið á upprennandi tónlistarfólki.

Óvissa ríkir einnig um framtíðarhúsnæði Listaskólans og þar var kennurum fækkað í kjölfar hruns sem leitt hefur til þess að biðlisti eftir plássi er sá lengsti á höfuðborgarsvæðinu, yfir 120 börn. Vandinn er alvarlegur og uppsafnaður eins og húsnæðisekla skólanna.

Fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf er í Mosfellsbæ og er Ungmennafélagið Afturelding burðarás í íþróttastarfi, hestamannafélagið Hörður, skátarnir og fleiri félög eru líka með öfluga starfsemi.

Íbúahreyfingin gerir lýðheilsusjónarmiðum hátt undir höfði og leggur áherslu á að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar á útisvæðum í íbúðarhverfum. Þannig mætti fjölga hjólabrettapöllum og sparkvöllum sem eru vinsælir. Eins mætti koma upp aðstöðu fyrir útiblak sem er eftirsótt íþrótt erlendis. Aðstaða fyrir frisbígolf kostar lítið og áhugi er á skólahreystivöllum.

Ýmislegt fleira má gera til að gera Mosfellsbæ spennandi í augum ungs fólks. Íbúahreyfingin telur við hæfi að tómstundaávísun gildi fyrir framhaldskólanema til tvítugs. Með því væri hægt að gera þeim mögulegt að stunda það tómstundastarf sem þeir vilja. Bótaþegar ættu líka að njóta sömu réttinda til að draga úr félagslegri einangrun og efla bæjarlífið í leiðinni.

Ljóst er að þótt ýmislegt sé vel gert í tómstundamálum í Mosfellsbæ má margt betur fara. Mikilvægast er að vinna markvisst að uppbyggingunni og sjá til þess að hún gerist jafnt og þétt og í samráði við þá hópa sem þjónustuna nota svo sem ungmennaráðið sem Íbúahreyfingin vill gjarnan efla.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×