Stjörnumenn treysta á ungu strákana Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. október 2014 06:15 Rólegur Rúnar Páll flýtir sér hægt í leikmannamálum. Fréttablaðið/stefán
Það verður ekki sagt að Íslandsmeistarar Stjörnunnar hafi miklar áhyggjur af leikmannamálum sínum fyrir næstu leiktíð, en þeir hafa ekki bætt við sig neinum leikmanni og varla verið orðaðir við neinn. „Enn sem komið er þá erum við bara slakir á leikmannamarkaðnum. Við erum með góðan hóp og öfluga unga stráka sem eru að koma upp,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, við Fréttablaðið í gær. Stjörnuliðið þarf hvað helst að styrkja framlínuna, en danski framherjinn Rolf Toft ætlar að reyna fyrir sér hjá stærri liðum á Norðurlöndum. Jeppe Hansen hefur þó verið orðaður við endurkomu í Garðabæinn. „Þetta eru frábærir leikmenn sem spiluðu vel fyrir okkur og ég hefði ekkert á móti því að fá þá. Jeppe er samt með samning úti þannig hann verður líklega bara að virða hann,“ sagði Rúnar Páll. „Við erum sáttir með hópinn okkar og flestir leikmannanna verða áfram fyrir utan Danina kannski.“ Leikmenn á borð við Brynjar Gauta Guðjónsson og Þórarin Inga Valdimarsson hafa verið orðaðir við Garðabæjarliðið en Rúnar gefur ekkert upp. „Það eru góðir leikmenn, en við erum ekki búnir að tala við þá.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Enski boltinn Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn Asensio hetjan í endurkomu Villa Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Handbolti Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Handbolti Fleiri fréttir Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Sjá meira
Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Handbolti
Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Handbolti