Íslenski boltinn

Strákar á Sel­fossi söfnuðu fé fyrir jafn­aldra sinn í HK

Sindri Sverrisson skrifar
Strákarnir í Selfossi og HK standa saman þó að þeir séu andstæðingar innan vallar.
Strákarnir í Selfossi og HK standa saman þó að þeir séu andstæðingar innan vallar. UMF Selfoss

Strákarnir í 4. flokki Selfoss í fótbolta tóku sig til og söfnuðu peningum til styrktar jafnaldra sínum í HK, Tómasi Frey Guðjónssyni, sem glímir við krabbamein.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu Selfoss þar sem segir að strákarnir hafi að eigin frumkvæði selt harðfisk og svo lagt allan ágóðann inn á styrktarreikning Tómasar Freys. Þeir sendi Tómasi jafnframt baráttukveðjur.

Tómas hefur þurft að fara í erfiðar lyfjameðferðir eftir að hafa greinst með krabbamein og einnig þurfti hann að gangast undir erfiða aðgerð í Svíþjóð.

Liðsfélagar hans og vinir í 4. flokki HK skipulögðu viðburð í janúar til að sýna honum stuðning og safna fé en þá fór fram sérstakur styrktarleikur í Kórnum í Kópavogi. 

Auk þess að skipuleggja viðburðinn til styrktar Tómasi Frey tóku HK-ingarnir allir upp á því að krúnuraka sig til að sýna honum frekari stuðning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×