NBA: New Orleans og Brooklyn síðustu liðin inn í úrslitakeppnina | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2015 07:00 Anthony Davis fagnar í nótt. Vísir/Getty
New Orleans Pelicans og Brooklyn Nets tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni á lokakvöld deildarkeppninnar í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Oklahoma City Thunder og Indiana Pacers sátu hinsvegar eftir.Anthony Davis var með 31 stig og 13 fráköst þegar lið hans New Orleans Pelicans vann 108-103 á San Antonio Spurs og endaði ekki aðeins 11 leikja sigurgöngu Spurs heldur tryggði sér með því áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. New Orleans Pelicans hefur ekki komist í úrslitakeppnina síðan 2011 og þetta verður í fyrsta sinn sem Anthony Davis spilar í úrslitakeppni. Tyreke Evans var með 19 stig og 11 stoðsendingar hjá Pelicans-liðinu en Tony Parker skoraði 23 stig fyrir San Antonio.Russell Westbrook skoraði 37 stig í 138-113 stórsigri Oklahoma City Thunder á Minnesota Timberwolves en Oklahoma City sat eftir og komst ekki í úrslitakeppnina þar sem að New Orleans Pelicans vann meistara San Antonio Spurs. OKC missir því af úrslitakeppninni í fyrsta sinn frá 2008-2009 tímabilinu.Nýliðinn Bojan Bogdanovic skoraði 28 stig þegar Brooklyn Nets tryggði sér áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppni Austurdeildarinnar með 101-88 sigri á Orlando Magic. Brooklyn þurfti líka að treysta á það að Memphis myndi vinna Indiana sem varð raunin.Marc Gasol var með 33 stig og 13 fráköst þegar Memphis Grizzlies vann 95-83 sigur á Indiana Pacers og sá til þess Indiana-liðið komst ekki í úrslitakeppnina. C.J. Miles skoraði 26 stig fyrir Indiana og George Hill var með 20 stig.James Harden var með þrefalda tvennu, 16 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar, þrátt fyrir að spila ekkert í fjórða leikhluta þegar Houston Rockets vann 117-91 sigur á Utah Jazz.Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt: Toronto Raptors - Charlotte Hornets 92-87 Chicago Bulls Atlanta Hawks 91-85 Dallas Mavericks - Portland Trail Blazers 114-98 Houston Rockets - Utah Jazz 117-91 Milwaukee Bucks - Boston Celtics 100-105 Minnesota Timberwolves - Oklahoma City Thunder 113-138 New Orleans Pelicans - San Antonio Spurs 108-103 Brooklyn Nets - Orlando Magic 101-88 Cleveland Cavaliers - Washington Wizards 113-108 (framlengt) New York Knicks - Detroit Pistons 90-112 Philadelphia 76ers - Miami Heat 101-105 Memphis Grizzlies - Indiana Pacers 95-93 Golden State Warriors - Denver Nuggets 133-126 Los Angeles Lakers - Sacramento Kings 99-122
NBA Mest lesið Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Fleiri fréttir „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ Sjá meira