Emil með sjö stoðsendingar í síðustu níu leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2015 11:30 Luca Toni þakkar Emil Hallfreðssyni fyrir stoðsendingu. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn Emil Hallfreðsson kom aftur inn í lið Hellas Verona eftir meiðsli og lagði upp bæði mörk liðsins um helgina. Emil hefur verið duglegur að leggja upp mörk fyrir félaga sína að undanförnu en hann hefur gefið sjö stoðsendingar í síðustu níu leikjum sínum í ítölsku deildinni. Emil hefur átt fjórar af þessum stoðsendingum sínum á Luca Toni en hann hefur einnig átt tvær á Juan Gómez. Emil lagði upp mark fyrir báða í gær. Aukaspyrnur og hornspyrnur Emils eru hættulegar en fjórar af þessum sjö stoðsendingum hans í síðustu níu leikjum hafa komið beint úr föstum leikatriðum. Emil er alls með átta stoðsendingar á tímabilinu og er kominn í hóp efstu manna í ítölsku deildinni. Hann gaf samtals fjórar stoðsendingar á tímabilinu í fyrra. Emil hefur alls skorað fjögur mörk og lagt upp tólf í 92 leikjum sínum í ítölsku deildinni en enginn annar íslenskur knattspyrnumaður hefur náð því.Stoðsendingar Emils Hallfreðssonar síðan 15. febrúar: 1. Luca Toni, skot með vinstri á móti Genoa (fyrirgjöf) 2. Bosko Jankovic, skallamark á móti Roma (horn) 3. Luca Toni, skot með hægri á móti Cagliari (fyrirgjöf) 4. Juan Gómez, skallamark á móti Cagliari (aukaspyrna) 5. Luca Toni, skot með vinstri á móti Napoli (fyrirgjöf) 6. Juan Gómez, skallamark á móti Chievo (aukaspyrna) 7. Luca Toni, skot með hægri á móti Chievo (aukaspyrna)
Ítalski boltinn Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Handbolti Gísli og félagar með fullt hús stiga Fótbolti Fleiri fréttir „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum Sjá meira