Ingvar vill finna sér nýtt félag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. júní 2015 10:30 Ingvar var valinn besti leikmaður Pepsi-deildar karla í fyrra. Vísir
Líkur eru á að Ingvar Jónsson verði lánaður frá norska liðinu Start á síðari hluta tímabilsins. Í samtali við norska fjölmiðla segir hann að lið í sænsku úrvalsdeildinni sem og sænsku B-deildinni hafi áhuga á Ingvar. Það eina sem vaki fyrir honum er að fá að spila. „Ég kom hingað til að spila og það hefur ekki gerst,“ sagði Ingvar sem hefur þess í stað spilað með varaliði Start í norsku þriðju deildinni. „Ég vil spila í sterkari deild svo ég geti barist um sæti í landsliðinu,“ sagði Ingvar enn fremur en hann var ekki í valinn í leikmannahóp Íslands fyrir leikinn gegn Tékkum á föstudag. Mons Ivar Mjelde, þjálfari Start, viðurkennir að félagið hefur ekki komið nógu vel fram við Ingvar sem hefur fengið tækifærið í einum leik í norsku deildinni. Þá tapaði Start fyrir Rosenborg, 3-0, í lok apríl. „Það ætti að vera heilbrigð samkeppni á milli hans og Håkon Opdal en hann hefur staðið sig ótrúlega vel. Við þurfum að takast á við málið af alvöru. Ingvar þarf að spila í sterkari deild og þarf að spila meira,“ sagði Mjelde. Ingvar segir að sér og fjölskyldu sinni líði vel Kristiansand en það eina neikvæða sé að hann fái ekki að spila. Hann trúi því þó enn að hann geti unnið sér sæti í íslenska landsliðinu. „Auðvitað vil ég taka þátt í ævintýrinu. Það eru enn 2-3 mánuðir í næsta leik og ég vil vera með þá.“
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar Fótbolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Fleiri fréttir United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Sjá meira