Wade gerði bara eins árs samning Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 12:00 Dwyane Wade og Chris Bosh spila áfram saman á næsta tímabili. Vísir/Getty
Dwyane Wade verður áfram með Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta á næsta tímabili en hann hefur þó ákveðið að gera bara eins árs samning að þessu sinni. Nýr samningur Dwyane Wade og Miami Heat mun gefa Wade um 20 milljónir dollara í aðra hönd eða meira en 2,6 milljarða í íslenskum krónum. Bandarískir fjölmiðlar voru duglegir að orða Wade við lið eins og Cleveland Cavaliers og Los Angeles Lakers og forráðamenn Miami Heat ætluðu að passa sig á því að missa ekki Wade eins og LeBron James fyrir ári síðan. Wade verður því aftur með lausan samning næsta sumar og reynir þá eflaust að gera einn lokasamning við Miami Heat. Heat mun þar reyna að fá stjörnuleikmenn eins og Kevin Durant til að semja við félagið. Dwyane Wade er 33 ára gamall og hefur spilað með Miami Heat frá 2003. Hann varð NBA-meistari með liðinu 2006, 2012 og 2013. Wade var með 21,5 stig, 4,8 stoðsendingar og 3,5 fráköst að meðaltali í þeim 62 leikjum sem hann spilaði með Miami Heat á síðasta tímabili. Heat-liðið komst ekki í úrslitakeppnina en það hafði bara einu sinni gerst á tólf ára ferli Wade með Miami-liðinu.
NBA Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Handbolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Fleiri fréttir Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Sjá meira