Greiðslufall varð hjá gríska ríkinu í gær þegar ríkisstjórninni tókst ekki að standa skil á 1,6 milljarða evra láni sem landið skuldar Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Fjármálaráðherrar evruríkjanna hittast á fundi í dag og ræða um nýjasta útspil grísku ríkisstjórnina varðandi það hvernig leysa má úr skuldavanda ríkisins.
Örtröð myndaðist við útibú grískra banka í morgun þegar þeir voru opnaðir fyrir ellilífeyrisþegum sem nota ekki greiðslukort og fá lífeyri greiddan út í dag. Bankar í Grikklandi hafa verið lokaðir síðan á mánudag og geta Grikkir aðeins tekiðu út 60 evrur úr hraðbönkum á dag. Ellilífeyrisþegar sem fara í bankann í dag til að taka út pening geta í mesta lagi tekið út 120 evrur.
Þá komu þúsundir saman við gríska þinghúsið í Aþenu í gærkvöldi og hvöttu til þess að landsmenn segðu já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi sunnudag. Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um hvort gríska ríkið gangi að tilboði lánadrottna sem felur meðal annars í sér skattahækkanir og niðurskurð í velferðarkerfinu.
Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefur hvatt þjóð sína til að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni en leiðtogar Evrópusambandsins hafa varað við því að slík niðurstaða gæti leitt til útgöngu landsins úr evrusamstarfinu.
Örtröð við gríska banka í morgun

Tengdar fréttir

Þjóðaratkvæðagreiðsla um virðingu von og áframhald lýðræðis
Bankar í Grikklandi verða ekki opnir á morgun og þeir eiga ekki fyrir risavaxinni afborgin til AGS á þriðjudag.

Juncker segist svikinn af grískum ráðamönnum
Forseti framkvæmdastjórnar ESB var harðorður í garð grísku ríkisstjórnarinnar á fréttamannafundi í morgun.

Gríska ríkið er gjaldþrota
Grikkir misstu í gær af lokafresti til að borga Alþjóðagjaldeyrissjóðnum 1,6 milljarða evra. Gríska ríkisstjórnin sóttist eftir nýjum samningi um neyðaraðstoð. Skuldir verða enn óbærilegar árið 2030.

Beiðni Grikkja um framlengingu á neyðaraðstoð hafnað
Fjármálaráðherrar Evruríkjanna funda aftur á morgun. Allt bendir til þess að Grikklandi fari í greiðslufall í kvöld.

Frestur Grikkja runninn út: Fyrsta þróaða hagkerfi sögunnar á vanskilaskrá AGS
Gríska ríkinu tókst ekki að endurgreiða neyðarlán sitt í tæka tíð.