Hilmar Örn Jónsson, sleggjukastari úr FH, var fljótur að hrista af sér vonbrigðin frá EM U-19 í Svíþjóð í síðustu viku.
Þessi stórefnilegi piltur bætti Norðurlandamet 19 ára og yngri í greininni er hann kastaði 79,81 m á Coca Cola-móti FH í vikunni.
Hilmar Örn kastaði sex sinnum á mótinu og ávallt yfir 75 m. Metkastið kom í í sjöttu og síðustu umferðinni og hefði dugað til að vinna gull á EM U-19 ára. Kastið hefði einnig verið nýtt mótsmet.
Hilmar Örn gerði þrívegis ógilt í forkeppni sleggjukastsins á EM í Eskilstuna. Hann átti sjálfur gamla Íslandsmetið í flokki nítján ára og yngri en það var 78,07 m og sett á móti í Kaplakrika í byrjun síðasta mánaðar.
Hilmar Örn bætti Norðurlandametið

Tengdar fréttir

Hilmar Örn gerði þrívegis ógilt
Mikil vonbrigði fyrir sleggjukastarann sem ætlaði sér verðlaunasæti á EM 19 ára og yngri.