Strachan: Þetta er ekki búið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. september 2015 23:30 Strachan var stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir tapið gegn heimsmeisturum Þjóðverja í gær. vísir/getty
Þrátt fyrir tap gegn Þýskalandi á heimavelli í gær segir Gordon Strachan, landsliðsþjálfari Skotlands, að sínir menn eigi enn möguleika á að komast á EM í Frakklandi á næsta ári. Þessi landsleikjavika hefur ekki verið góð hjá Skotum en þeir töpuðu bæði fyrir Georgíu og Þýskalandi og eru nú fjórum stigum frá 3. sætinu í D-riðli, en það gefur annað hvort sæti í lokakeppninni eða sæti í umspili. „Við eigum enn möguleika,“ sagði Strachan eftir leikinn gegn Þjóðverjum í gær. Skotar áttu ágætis spretti í leiknum og jöfnuðu t.a.m. metin í tvígang í fyrri hálfleik. Þeim tókst hins vegar ekki að koma til baka eftir að Ilkay Gündogan kom heimsmeisturunum í 2-3 á 54. mínútu. „Við áttum möguleika á að ná í stig í síðustu tveimur leikjum en gerðum það ekki svo við getum ekki kennt neinum öðrum um en okkur sjálfum. En við erum enn á lífi í riðlinum,“ bætti Strachan við en hans menn mæta Póllandi á heimavelli og Gíbraltar á útivelli í síðustu tveimur leikjum sínum í undankeppninni. Þrátt fyrir stigaleysið var Strachan sáttur með spilamennsku Skota gegn Þjóðverjum í gær. „Við spiluðum vel og áttum góða möguleika á að ná í stig en við höfðum ekki heppnina með okkur. Þetta var nálægt því að vera hin fullkomna frammistaða. Ég finn til með leikmönnunum sem geta verið stoltir af sinni frammistöðu,“ sagði Strachan að endingu.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Sjá meira