Skoðun

Er ekki stemming fyrir því?

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar
Stemming í þjóðfélaginu er skemmtileg skepna. Á sumrin skottumst við um í lopapeysum á ættarmótum með miðnæturglampa í augum. Haustið kemur svo með sínum fallegu litbrigðum. Allir í bátana er stemmingin þá, borgarbúar komnir á sinn stað, skólar byrjaðir, og fé sótt á fjöll. Ábyrgð og framkvæmdagleði svífur yfir vötnum.

Félag kvenna í atvinnulífinu finnur fyrir góðri stemmingu í samfélaginu fyrir því að láta til sín taka og hafa áhrif. Það verkefni sem á hug okkar þessi misserin er að auka ásýnd kvenna í fjölmiðlum. Verkefnið hófst haustið 2013 með því að Creditinfo tók saman tölur þar sem greining var gerð á viðmælendum í ljósvakamiðlum frá febrúar 2009 til ágúst 2013. Niðurstaðan var sláandi en virðist samt ekki hafa komið neinum á óvart. Konur voru einn þriðji af viðmælendum ljósvakamiðlanna. Á þessu sannast eins og oft áður að staðreyndin er oft önnur en tilfinningin.

Fjölmiðlaverkefnið FKA er fyrst og síðast samstarfsverkefni sem hefur þrjá snertifleti.

Með stjórnendum fjölmiðla að því að auka vægi fjölbreytileika á ritstjórn­um og í stjórnendahópnum. Ásamt því að skapa menningu og stemmingu fyrir því að konur og karlar með ólíkan bakgrunn haldist í störfum innan fjölmiðla. Búinn til vettvangur á www.fka.is þar sem fjölmiðlafólk getur fundið nýja viðmælendur á svipstundu. Nú þegar eru yfir 300 konur inni á vef FKA sem segja JÁ við fjölmiðla. Verum konur til verksins hefur verið áhersla í innra starfi félagsins með því að vinna að því að þjálfa og efla konur í atvinnulífi í að koma fram í fjölmiðlum.

Við finnum fyrir góðri stemmingu með nýjum áherslum á að auka ásýnd kvenna í fjölmiðlum. Fjölmiðlahópur FKA hóf tilraunaverkefni með sjónvarpsstöðinni Hringbraut sl. vor þar sem Hulda Bjarnadóttir stýrði viðskiptaþættinum Hringtorg. Niðurstaðan var að ekkert mál var að fá konur í þáttinn og þegar upp var staðið voru kvenkyns viðmælendur 20 á móti 16 körlum, allt einstaklingar úr framvarðasveit íslensk atvinnulífs.

Einnig eru dæmi um gríðarlegar breytingar innan fjölmiðla hvað varðar stjórnendur og áherslur ritstjórna. Í nóvember nk. verður morgunráðstefna m.a. í samvinnu við 356 miðla, RÚV og Hringbraut þar sem farið verður yfir hver staðan er, hvað hefur breyst, hvernig gengur og hvernig við getum bætt stöðuna.

Það er greinileg stemming fyrir því hafa áhrif og taka þátt í að breyta samfélaginu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×