Yfirvofandi verkfall starfsmanna sem skráðir eru í stéttarfélagið SFR mun hafa þær afleiðingar að Vínbúðir um allt land verða lokaðar á fimmtudag og föstudag. Augljóslega mun verkfallið því hafa áhrif á skemmtanalíf Íslendinga þessa tvo daga, enda Íslendingar ekki endilega þekktir fyrir að vera tímanlega í áfengiskaupum – fólk virðist oft ákveða á síðustu stundu að kíkja út á lífið. Til marks um það eru Vínbúðirnar opnar lengur á föstudögum og er oft gríðarlega mikið að gera þar um helgar.
Stjórnendur skemmtistaða sjá sér nú leik á borði; væntanlega vita þeir sem er að fólk mun vilja skemmta sér og hafa pantanir stækkað undanfarið vegna þessa. „Við sjáum stærri pantanir, heilt yfir,“ segir Hreiðar Þór Jónsson, forstöðumaður á markaðssviði hjá Vífilfelli.
Hann segir Vífilfell finna fyrir mestri aukningu í pöntunum á sterku víni og léttu víni. „Við höfum einnig fundið stíganda í pöntunum á bjór, sem er væntanlega vegna þess að fólk sér að verkfallið er að skella á. Þetta er ekki bara fimmtudagur og föstudagur heldur líka mánudagur og þriðjudagur, þó svo að þeir séu rólegastir í Vínbúðunum. Veitingamaðurinn þarf einnig að hugsa um að hafa nægt framboð af áfengi frá fimmtudegi fram á miðvikudag í næstu viku þegar Vínbúðirnar verða opnaðar aftur.“

Geoffrey Þór Karl Huntingdon-Williams, sem sér um reksturinn á Prikinu ætlar að hafa lengra "Happy hour" vegna verkfallsins.