Lewandowski hefur skorað 9 mörk í síðustu 5 landsleikjum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. nóvember 2015 15:30 Robert Lewandowski. Vísir/Getty
Íslensku varnarmennirnir fá verðugt verkefni í kvöld við það að reyna að stoppa Robert Lewandowski, stærstu knattspyrnustjörnu Pólverja í dag. Ísland mætir þá Póllandi í vináttulandsleik á Narodowy-leikvanginum í Varsjá en báðar þjóðir eru að hefja þessum leik undirbúning sinn fyrir Evrópumótið í Frakklandi næsta sumar. Robert Lewandowski hefur bæði raðað inn mörkum hjá þýska liðinu Bayern München og með pólska landsliðinu. Lewandowski hefur þegar skorað 19 mörk í 18 leikjum í öllum keppnum með Bayern München á þessu tímabili. Lewandowski var síðan markahæsti leikmaður undankeppninnar með þrettán mörk eða fjórum mörkum meira en næsti maður sem var Þjóðverjinn Thomas Müller. Lewandowski hefur skorað í síðustu fimm landsleikjum sínum þar af er ein þrenna og tvær tvennur. Hann hefur skorað alls níu mörk í þessum fimm landsleikjum. Lewandowski hefur einnig fundið sig vel á Narodowy-leikvanginum en hann hefur skorað sex mörk í síðustu þremur leikjum sínum á þeim velli en þrír af fyrrnefndum leikjum hafa farið fram á þjóðarleikvanginum í Varsjá. Annar leikmaður sem hefur fundið sig vel í síðustu landsleikjum sínum á Narodowy-leikvanginum er Arkadiusz Milik, fyrrum liðsfélagið Kolbeins Sigþórssonar hjá Ajax. Milik hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm landsleikjum sínum á vellinum.Síðustu fimm leikir Robert Lewandowski með pólska landsliðinu: 4-0 sigur á Georgíu, 13. júní 2015: 3 mörk 1-3 tap fyrir Þýskalandi, 4. september 2015: 1 mark 8-1 sigur á Gíbraltar, 7. september 2015: 2 mörk 2-2 jafntefli við Skotland, 8. október 2015: 2 mörk 2-1 sigur á Írlandi, 11. október 2015: 1 mark
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Sjá meira