Spjótkastarinn sem vann verðlaun í hástökki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. febrúar 2015 07:00 Örn Davíðsson sveif yfir 1,91 m á Meistaramótinu á dögunum. Vísir/Valli
Það vakti athygli margra að kastarinn Örn Davíðsson hafnaði í þriðja sæti í hástökki á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum innanhúss í Kaplakrika um síðustu helgi. Örn, sem er fyrst og fremst spjótkastari, stökk yfir 1,91 metra sem dugði honum til að vinna bronsverðlaun á eftir Einari Daða Lárussyni og hinum stórefnilega Styrmi Dan Steinunnarsyni. „Ég vann þessa grein nokkrum sinnum þegar ég var yngri en þá var ég töluvert léttari og fimari en ég er í dag,“ sagði Örn í samtali við Fréttablaðið um árangurinn. „Ég ákvað bara að prófa og sjá hvort ég kynni þetta enn. Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá hversu hátt ég náði að stökkva.“ Örn byrjaði í 1,70 m og vann sig upp hægt og rólega út frá því. Hann hafði ekkert æft hástökkið sérstaklega fyrir mótið en hafði grun um að hann gæti náð yfir 1,90 m. „Ég ætlaði að keppa í kúluvarpi og bæta mig vel í þeirri grein. Ég tók nokkrar æfingar en tognaði svo illa á putta að ég gat ekki keppt. Það fór það mikið í taugarnar á mér að ég skráði mig bara í hástökkið,“ segir Örn. „Ég hafði trú á að ég gæti farið yfir þessa hæð og var svo hátt yfir henni þegar það tókst. Ég veit að ég á því nokkuð inni og get stokkið hærra,“ segir Örn sem felldi 1,94 m þrívegis. „Það var svekkjandi enda var ég afar nálægt því að fara yfir.“Síðasti séns að vinna Styrmi Einar Daði hafði nokkra yfirburði í greininni. Hann byrjaði í 1,94 m, svo 1,97 m og loks 2,0 m. Hann fór yfir allar hæðir í fyrstu atrennu og tryggði sér sigurinn í lokastökkinu, þar sem Styrmir Dan felldi 2,0 m þrívegis. Styrmir Dan, sem verður sextán ára síðar í mánuðinum, á öll aldursflokkamet fimmtán ára og yngri í greininni og á framtíðina fyrir sér. Örn viðurkennir að líklega hafi þetta verið síðasta tækifærið hans til að vinna Styrmi í hástökki. „Ég hefði haft gaman af því,“ segir Örn í léttum dúr. „Þetta er afar seigur drengur – er duglegur að æfa og ég hef mikla trú á honum.“Hef bætt mig í öllum þáttum Örn er einn sex Íslendinga sem hafa kastað spjótinu yfir 75 m eftir að núverandi tegund var innleidd árið 1986. Tveir á þeim lista eru æfingafélagar hans – Guðmundur Sverrisson (þriðji með 80,66 m) og Sindri Hrafn Guðmundsson (fimmti með 77,28 m) – auk þess sem hinn sautján ára Dagbjartur Daði Jónsson er einnig í sama æfingahópi. Þjálfari þeirra er Íslandsmethafinn og formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, Einar Vilhjálmsson. „Ég var meiddur allt síðasta sumar og vona því að ég nái að bæta mig vel í spjótkastinu í sumar,“ segir Örn sem á lengst 75,96 m sem hann kastaði sumarið 2012. „Æfingarnar hafa gengið það vel að ég hef bætt mig í öllu því sem hægt er að tengja við spjótkastið. Tæknin hjá mér hefur batnað til muna.“Væri gaman að fara yfir 80 metrana Kasta þarf 82 m til að komast inn á HM í frjálsum sem fer fram í Kína í sumar. „Það er stutt í 80 m hjá mér og væri gaman að ná því, að ég tali ekki um að komast á HM. En stóra markmiðið er að komast á EM 2016 þar sem lágmarkið er 78 m. Það væri mjög skemmtilegt ef Íslandi ætti að minnsta kosti þrjá keppendur þar,“ segir Örn og bætir við að það ríki góð stemning á milli þeirra félaga á æfingum þótt þeir komi úr þremur mismunandi félögum – Örn úr FH, Sindri Hrafn úr Breiðabliki og Guðmundur og Dagbjartur úr ÍR. „Það er gaman hjá okkur á æfingum en samkeppnin heldur okkur einnig á tánum. Ef maður stendur sig ekki þá veit maður að það er stutt í að einhver annar komi og taki þig í gegn. Einar er svo afar reynslumikill og kann þetta allt. Það er gott að hafa hann með okkur.“ Örn hefur þó ekki sagt skilið við hástökkið og stefnir á að stökkva aftur í bikarkeppni FRÍ í lok mánaðarins. „Ég á best 1,97 m og væri gaman að sjá hvort ég geti náð því aftur.“
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Hafdís nærri dottin: Heppin að ég lamdi ekki Hrafnhild Vön því að æfa hlaup í fótboltahöllum á Akureyri. 9. febrúar 2015 06:00 Aníta hefur byrjað fjögur ár í röð á því að setja Íslandsmet Aníta Hinriksdóttir hefur sett tíu "margföld“ Íslandsmet í 800 metra hlaupi á síðustu fjórum árum og Íslandsmetin í öllum aldursflokkum í hennar bestu grein eru nú orðin yfir fjörutíu. Er enn í mikilli framför. 11. febrúar 2015 08:00 Meðferðin á einstöku nafni Hrafnhild löngu hætt að pirra hana Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir hætti í handbolta þegar hún var sautján ára og skellti sér á sína fyrstu frjálsíþróttaæfingu. Um síðustu helgi var hún aðeins tveimur sekúndubrotum frá því að setja nýtt Íslandsmet í 60 metra hlaupi. 6. febrúar 2015 06:30 Aníta: Draumurinn að fá boð á Demantamót Aníta Hinriksdóttir virðist í góðu formi í upphafi nýs árs en hún bætti eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika. Aníta bætti einnig eigið Evrópumet í flokki 19 ára og yngri. 9. febrúar 2015 07:00 Lúxusvandamál á fundi stjórnar FRÍ á fimmtudaginn Konur áttu tíu af tólf bestu afrekum Meistaramóts Íslands í Kaplakrika um helgina og það var bara Kolbeinn Höður Gunnarsson sem rauf einokun stelpnanna á toppsætum listans. 10. febrúar 2015 07:00 Mest lesið Fórnar bandarískum háskólapartýum til að ná á toppinn Golf Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót? Golf „Aðeins léttari þegar það er saklaus sál heima sem þarf að sjá um“ Íslenski boltinn Lærðu að fagna eins og verðandi feður Íslenski boltinn Saklaus en missti af Ólympíuleikunum eftir mistök félagsins Fótbolti Dæmd í bann fyrir að klípa í klof Fótbolti KA búið að landa fyrirliða Lyngby Íslenski boltinn Sjáðu allar tilfinningarnar hjá Rory þegar hann vann Masters mótið Golf Versti sóknarleikur nýliða í meira en þrjá áratugi Íslenski boltinn Fyrsti nýi meðlimurinn í 25 ár Golf Fleiri fréttir Aftur með þrennu á afmælisdeginum „Þetta var eitt af þessum stóru augnablikum sem ég mun aldrei gleyma“ Rory vill veita leikmönnum Man United innblástur „Þurfum að halda betur fókus þegar það hægist á leiknum“ KA búið að landa fyrirliða Lyngby Versti sóknarleikur nýliða í meira en þrjá áratugi Fórnar bandarískum háskólapartýum til að ná á toppinn Lærðu að fagna eins og verðandi feður Fyrsti nýi meðlimurinn í 25 ár Besta-spáin 2025: Áframhaldandi hamingja í Víkinni „Aðeins léttari þegar það er saklaus sál heima sem þarf að sjá um“ Besta-spáin 2025: Stórir draumar í Laugardalnum Eyþóra með gullna endurkomu: „Kennslustund í glæsileika“ Fékk síðasta bikarinn á ferlinum mörgum mánuðum eftir að hann hætti Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót? Saklaus en missti af Ólympíuleikunum eftir mistök félagsins Mörkin úr Bestu: Fram afgreiddi meistara Blika á ellefu mínútna kafla Stjórinn fór á barinn með stuðningsmönnunum eftir leik Dæmd í bann fyrir að klípa í klof Sjáðu allar tilfinningarnar hjá Rory þegar hann vann Masters mótið Fótboltamaður lést eftir samstuð inn á vellinum Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur, úrslitarimma, uppgjörsþættir og Karólína Lea McIlroy vann Masters í bráðabana „Við erum að reyna að skapa vonir og trú á þetta verkefni“ Ancelotti: Mbappé er ekki ofbeldisfullur en þetta var augljóst rautt spjald „Getum klárlega farið alla leið ef við viljum það“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 75-70 | Valur sendi Þórsara í sumarfrí Uppgjörið: Víkingur - KA 4-0 | Meiðslum hrjáðir Víkingar léku KA-menn grátt Uppgjörið: Fram - Breiðablik 4-2 | Skoruðu fjögur mörk á minna en tíu mínútum til að tryggja sigur „Einbeitum okkur að fimmtudeginum“ Sjá meira
Hafdís nærri dottin: Heppin að ég lamdi ekki Hrafnhild Vön því að æfa hlaup í fótboltahöllum á Akureyri. 9. febrúar 2015 06:00
Aníta hefur byrjað fjögur ár í röð á því að setja Íslandsmet Aníta Hinriksdóttir hefur sett tíu "margföld“ Íslandsmet í 800 metra hlaupi á síðustu fjórum árum og Íslandsmetin í öllum aldursflokkum í hennar bestu grein eru nú orðin yfir fjörutíu. Er enn í mikilli framför. 11. febrúar 2015 08:00
Meðferðin á einstöku nafni Hrafnhild löngu hætt að pirra hana Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir hætti í handbolta þegar hún var sautján ára og skellti sér á sína fyrstu frjálsíþróttaæfingu. Um síðustu helgi var hún aðeins tveimur sekúndubrotum frá því að setja nýtt Íslandsmet í 60 metra hlaupi. 6. febrúar 2015 06:30
Aníta: Draumurinn að fá boð á Demantamót Aníta Hinriksdóttir virðist í góðu formi í upphafi nýs árs en hún bætti eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika. Aníta bætti einnig eigið Evrópumet í flokki 19 ára og yngri. 9. febrúar 2015 07:00
Lúxusvandamál á fundi stjórnar FRÍ á fimmtudaginn Konur áttu tíu af tólf bestu afrekum Meistaramóts Íslands í Kaplakrika um helgina og það var bara Kolbeinn Höður Gunnarsson sem rauf einokun stelpnanna á toppsætum listans. 10. febrúar 2015 07:00