Sólmyrkvagleraugu eru uppseld á landinu og að horfa á sólina án viðeigandi hlífðarbúnaðar getur valdið varanlegum augnskaða og blindu í verstu tilvikum. Það eina sem dugar til að horfa á sólmyrkvann eru sólmyrkvagleraugu, glerið er úr silfurhúðaðri sólarfilmu sem síar burt skaðlega innrauða geisla og útfjólublátt ljós. Þeir hleypa aðeins hundrað þúsundasta hluta af sýnilega sólarljósinu í gegn svo öruggt er að skoða sólina með þeim.

„Margir nemendur í skólanum voru ekki komnir með gleraugu, en eftir nokkra leit fundum við næma filmu, sem gleypir í sig sólarljósið, til að nota í gleraugu,“ segir Þórður Atlason, nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík, og segir tugi nemenda hafa hjálpað til við að setja saman 300 gleraugu sem eru til brúks í dag.
„Við vonum að það verði nóg af gleraugum til þess að allir geti horft á myrkvann. Ef ekki, þá ættu nemendur að skiptast á.“ Augnlæknar víða í Evrópu hafa ítrekað aðvaranir sínar vegna hættu á skaða á augum og vara líka fólk við að taka sjálfsmynd á símana sína. „Fólk ætti að vara sig á því að taka „selfie“ af sér með sólmyrkvann í baksýn,“ segir Patricia Quinlan augnlæknir í samtali við Irish Times. Ráð sem Íslendingar ættu að hlýða.
Sól er lágt á lofti í morgun og því vilja margir koma sér fyrir á stað þar sem lítið skyggir á sýn til sólar. Á Akureyri verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað klukkan 8.00 og fólki gefst kostur á að fara með lyftum til að horfa á sólmyrkvann í eitt þúsund metra hæð.
Skíðamiðstöðin í Oddskarði er líka opin frá 8.30 og þaðan má fylgjast með sólmyrkvanum úr allt að 850 metra hæð, með útsýni yfir Atlantshafið.
Margir ferðamenn munu fara frá Reykjavíkurhöfn og horfa á myrkvann á hafi úti.