Skoðun

Nýtt X, takk

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Mannúðleg heimspeki, lífsskoðun, grunnhugmynd eða hvaðeina sem menn vilja nefna leiðarhnoða manna í stjórnmálum, þarf ekki að vera flókin til að virka.

Á Íslandi og víðar, burtséð frá gölluðu hagkerfi, er afar stór hópur sem getur tekið undir eftirfarandi: Við viljum sem mestan jöfnuð í lífsgæðum. Við viljum góð tækifæri til að ráða málum okkar sjálf, sem sagt jafnræði. Við viljum jafnrétti og sem mest mannréttindi. Þarna sjá menn j-in þrjú, sem ásamt stýrðu (en ekki ótakmörkuðu) frelsi til athafna, heimiluðu framfarir fyrir margt löngu; voru visst uppgjör við stöðnuð yfirstéttarveldi.

Nú til dags standa m.a. samþjöppun auðs, fáveldi mokríkra einstaklinga og völd alþjóðlegra hringa, í skjóli fjárfreks hervalds, í vegi fyrir j-unum þremur. Við bætist ógn við heimsbyggðina vegna harkalegrar auðlindanýtingar og hlýnunar sem fyrirhyggjulaus orkustefna veldur; vegna rányrkju í stað raunyrkju.

Ísland fer ekki varhluta af þessu. Hrunið og átökin í samfélaginu um helstu álitamál hafa skipt þeim er hafa áhuga á pólitík í marga hópa. Við höfum í bili ekki önnur verkfæri til að brúka í þeim átökum en fjölmiðlana, framboðsflokka, þingið, sveitarstjórnir og margvísleg hagsmuna- og áhugasamtök. Við teljumst vera virkt þingbundið lýðræðisríki.

Hagur almennings í húfi

Við þessar aðstæður verða þeir sem bera j-in þrjú fyrir brjósti, með býsna ólíkum skilningi þó, að vinna saman í að minnsta kosti nokkur ár, við að rétta af slagsíðu samfélagsins í nafni réttlætis. Hvað sem þröngum en skánandi hag ríkisins líður, teiknum um þolanlega (?) stöðu hagkerfisins í heild og pælingum um afnám gjaldeyrishafta, bíða mörg verkefni úrlausna þar sem hagur almennings og lífskjör eru í húfi. Um það vitna kröfur og deilur sem aldrei fyrr og ekki síður harðnandi lífsskilyrði öryrkja, ótal ungra Íslendinga í húsnæðisleit, sjúklinga, aldraðra, láglaunafólks, nema, margra innflytjenda o.s.frv.

Samvinna þess fólks sem gegnir hugtakinu félagshyggjufólk, þarf að ná til sameiginlegrar og opinnar stefnumótunar í helstu málaflokkum næstu tvö kjörtímabil – með vönduðum tillögum að leiðum til lausna. Hún þarf líka að ná til þess hvert form samstarfsins verður að vera svo það virki fólk langt út fyrir raðir flokka. Loks þarf samvinnan að opna fyrir endurskipulagningu á helstu stoðum samfélagsins. En það er verkefni 1-2 áratuga og þarfnast þess að samfélagið allt sé virkjað til þátttöku.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×