Forsvarsmenn ferðaþjónustufyrirtækja hafa ákveðið að hætta að senda ferðamenn á svæðið á sínum snærum þar sem upplifun ferðamanna af svæðinu er ekki í takti við væntingar. Á stöku stað þurfi ferðamenn að ganga um á vörubrettum vegna vatnselgs.

„Sá hópur sem ég var með á svæðinu fyrir örfáum dögum hafði séð auglýsingar sem hefur verið dreift út um allan heim. Sú glansmynd sem dregin var upp af svæðinu og raunverulegar aðstæður eru algjörlega svart og hvítt. Hópurinn bjóst við fallegum ísgöngum með flottri lýsingu en fékk allt annað,“ segir Karl.
„Það rigndi nú á hópinn í göngunum, sem og að munni ganganna var handónýtur. Einnig var allt umflotið vatni í göngunum og þegar maður kemur að gangamunnanum er snjórinn sótsvartur og afleit aðkoma.“
Íshellirinn í Langjökli hefur vakið heimsathygli og stærstu fréttastofur heims hafa gert honum skil. Lonely Planet setti hann á lista yfir áhugaverðustu staði ársins til að heimsækja og gerðar hafa verið miklar vonir til hans sem ferðamannastaðar. Ragnheiður Elín Árnadóttir vígði formlega ísgöngin í maí síðastliðnum og því hafa göngin sjálf verið í rekstri í afar stuttan tíma.

„Það er í raun ekkert sem kemur okkur á óvart í þessu,“ segir Sigurður. „Við vitum að jökullinn er lifandi að því leyti að hann bráðnar á sumrin, það er vatn að leka úr lofti hellisins fyrstu 50 metrana en síðan er það búið. Við erum í átaksverkefni núna, að laga aðkomuna fyrir gesti. Ástæða fyrir þessum óþrifnaði er að þarna koma bílar sem hafa verið á möl og svo lekur skítur af þeim fyrir utan göngin hjá okkur. Þannig verður þetta svarta plan.“
Hann hafði ekki heyrt af því að ferðaþjónustufyrirtækin væru í einhverjum mæli að hætta við að senda ferðamenn á svæðið og þykir það miður. Hann fullvissar alla um að öryggi þeirra í göngunum sé tryggt.
„Menn upplifa auðvitað göngin með mismunandi hætti. Leiðinlegt þykir mér að þessi hópur hafi upplifað þetta svona en margir koma mjög ánægðir úr göngunum okkar. Það er hins vegar svo að við erum mjög ungt fyrirtæki og hlustum á allar raddir og reynum að laga allt. Við þurfum að hlusta á alla og erum enn þá að læra. Reynum auðvitað að gera okkar allra besta,“ segir Sigurður.