Jákvæðar raddir heyrast um Renault vél ársins 2016 samkvæmt Jonathan Wheatley, framkvæmdastjóra Red Bull liðsins.
Franski vélaframleiðandinn er enn að elta þær framfarir sem aðrir vélaframleiðendur náðu á síaðsta ári. Renault vélin verður enn ekki jafnoki Mercedes vélarinnar að sögn Wheatley.
Renault vélarnar sem Red Bull mun nota verður merkt úraframleiðandanum Tag Heuer.
„Það eru mjög góðar fréttir að koma frá Frakklandi þessi misserin. Þetta verða ekki ógnvænlegar framfarir en þó einhverjar sem er mjög jákvætt,“ sagði Wheatley í samtali við GPUpdate.
„Þannig met ég stöðuna í augnablikinu. Verður vélin jafnfætis öðrum vélum 2016? Ég tel það ólíklegt. En við verðum að nálgast,“ bætti Wheatley við.
Smíð bílsins ganga vel og er hann á undan áætlun að sögn Wheatley. Þrátt fyrir óvissuna sem ríkti með framhaldandi þátttöku Red Bull í Formúlu 1 og mögulegan vélaskort.
Red Bull ætlar að kynna nýja bílinn sinn, RB12 til leiks í London þann 17. febrúar.
„Við erum heppin að þekkja vélina sem við erum að fara að nota, það er vegna þess frekar einfalt að raða bílnum sjálfum saman. Ég átti fund með yfirhönnuði bílsins nýlega og hlutirnir eru nokkuð á undan áætlun,“ sagði Wheatley að lokum.
Red Bull: Mjög góðar fréttir frá Renault

Tengdar fréttir

Sainz segir Toro Rosso geta staðið framar Red Bull 2016
Carlos Sainz, ökumaður Toro Rosso liðsins telur að liðið geti staðið framar Red Bull á næsta ári. Toro Rosso mun notast við Ferrari vél en Red Bull Renault vél.

Renault vill ekki klára tímabilið án þess að vinna keppni
Remi Taffin, framkvæmdastjóri vélamála hjá Renault segir að það verði vont að enda tímabilið án þess að vinna keppni. Aðeins ein keppni er eftir á tímabilinu.

Red Bull notar Tag Heuer vél
Red Bull liðið mun nota Renault vél á næsta ári sem merkt verður úraframleiðandanum Tag Heuer.

Red Bull vill semja við Renault aftur
Red Bull hefur ekki tekist að semja við neinn annan vélaframleiðanda í Formúlu 1 að undanförnu og snýr sér nú aftur til Renault.

Vélaverð lækkar um milljarð og V6 vélar til 2020
Samkomulag hefur náðst um að halda í V6 tvinnvélar til 2020 að minnsta kosti. Samkomulag náðist um lægri verð á vélunum á tveggja daga fundi í Geníva í vikunni.