Íslandsbanki kynnir Ferðaþjónustuskýrsluna á mánudag Sæunn Gísladóttir skrifar 26. febrúar 2016 16:45 Jökulsárlón er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. visir/vilhelm
Íslandsbanki kynnir skýrslu um íslenska ferðaþjónustu í annað sinn á mánudaginn í Hörpu. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, og Bjarnólfur Lárusson, sérfræðingur á Fyrirtækjasviði, kynna Ferðaþjónustuskýrsluna. Með útgáfunni vill Íslandsbanki leggja sitt af mörkum við að upplýsa um stöðu ferðaþjónustunnar. Er það von bankans að skýrslan reynist gagnleg og góð viðbót við þá miklu umfjöllun sem ferðaþjónustan hefur alið af sér og verðskuldar. Ferðaþjónustan hefur undanfarin ár sett mark sitt á efnahagslíf landsmanna og samfélagið í heild. Eftir mjög hraðan vöxt síðustu ár er nú svo komið að ferðaþjónustan er orðin ein af mikilvægustu atvinnugreinum þjóðarinnar. Útlit er fyrir að framhald verði á miklum vexti greinarinnar í ár. Samhliða þessum mikla vexti standa Íslendingar frammi fyrir þeirri áskorun að hlúa vel að náttúru landsins sem er stór þáttur í aðdráttarafli þess og þeim innviðum sem efla samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu á alþjóðavettvangi. Íslandsbanki hefur styrkt stöðu sína í íslenskri ferðaþjónustu verulega að undanförnu. Í árslok 2015 voru lán til fyrirtækja í ferðaþjónustu um 17 prósent af lánasafni bankans til fyrirtækja.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Viðskipti innlent Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Hafi ógnað öryggi flugsins en fær samt bætur Neytendur Árni Oddur tekur við formennsku Viðskipti innlent Trump boðar „stórfellda“ tolla á lyf en Róbert hefur ekki áhyggjur Viðskipti erlent Hækkar tolla á Kína og samþykkir níutíu daga „hlé“ fyrir tugi ríkja Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Hækkanir í Kauphöllinni á ný Nýr fríverslunarsamningur við Úkraínu samþykktur Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson Truflanir í heimabönkum vegna bilunar hjá Reiknistofu bankanna Tvö hundruð konur töluðu um orkumál á KÍO-deginum Um 44 prósent hlynnt inngöngu í Evrópusambandið Kaupa fyrir 234 milljónir og eiga rúman þriðjung Fátt rökrétt við lækkanirnar Vöruviðskiptin tíu milljörðum óhagstæðari en í mars í fyrra Áframhaldandi hrun í Kauphöllinni Metfjöldi farþega í mars Sjá meira