Jón Daði skoraði sitt fyrsta mark en það dugði ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2016 21:36 Jón Daði Böðvarsson. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson opnaði í kvöld markareikninginn sinn með liði Kaiserslautern í þýsku b-deildinni í fótbolta. Kaiserslautern varð engu að síður að sætta sig við 2-1 tap á móti Nürnberg en sigurmarkið kom tveimur mínútum fyrir leikslok. Jón Daði Böðvarsson skoraði markið sitt á 22. mínútu og jafnaði þá metin í 1-1. Patrick Erras hafði komið Nürnberg í 1-0 þremur mínútum fyrr. Zoltán Stieber skoraði sigurmark Nürnberg á 88. mínútu. Jón Daði kom til Kaiserslautern um áramótin og hafði ekki náð að skora í fimm fyrstu leikjum liðsins eftir vetrarfríið. Það gengur lítið hjá Kaiserslautern þessa dagana en þetta var þriðji tapleikur liðsins í röð og liðið hefur aðeins náð í 5 stig af 18 mögulegum síðan að Jón Daði fór að spila með liðinu. Fyrir vikið situr Kaiserslautern í tíunda sæti deildarinnar og er nú sextán stigum frá þriðja sætinu sem gefur sæti í umspili um sæti í þýsku úrvalsdeildinni.
Þýski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Fleiri fréttir Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Sjá meira