23 ár síðan að Íslendingur skoraði síðast á móti Dortmund Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2016 14:00
Íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason skoraði í sínum öðrum leik leik í röð í Bundesligunni um helgina þegar hann gerði eina mark Augsburg í 3-1 tapi á móti Borussia Dortmund. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskur fótboltamaður skorar á móti þessu eina öflugasta liði Þýskalands og það voru liðin rétt tæp 23 ár síðan að Íslendingur skoraði síðast deildarmark á móti liði Borussia Dortmund. Alfreð var líklega nýbyrjaður á leikskóla þegar Eyjólfur Sverrisson skoraði eitt marka Stuttgart í óvæntum 4-0 útisigri á Borussia Dortmund 15. maí. Eyjólfur hafði einnig náð því að skora þrennu á móti Borussia Dortmund rúmum tveimur árum fyrr. Þrír aðrir íslenskir leikmenn hafa skorað á móti Borussia Dortmund í Bundesligunni en það eru þeir Lárus Guðmundsson, Ásgeir Sigurvinsson og Atli Eðvvaldsson. Atli var fyrstur og afrekaði það einni í tveimur leikjum. Alfreð hefur nú skorað 3 mörk og gefið 2 stoðsendingar í fyrstu 7 leikjum sínum með Augsburg í Bundesligunni. Það er hægt að sjá markið hans Alfreðs á móti Dortmund í spilaranum hér fyrir ofan.Íslensk mörk á móti Borussia Dortmund í BundesligunniAtli Eðvvaldsson 2 fyrir Fortuna Düsseldorf á móti Dortmund 9. október 1982 1 fyrir Fortuna Düsseldorf á móti Dortmund 25. mars 1983Lárus Guðmundsson 1 fyrir Bayer 05 Uerdingen á móti Dortmund 5. október 1985Ásgeir Sigurvinsson 1 fyrir Stuttgart á móti Dortmund 19. apríl 1986Eyjólfur Sverrisson 3 fyrir Stuttgart á móti Dortmund 23. febrúar 1991 1 fyrir Stuttgart á móti Dortmund 14. maí 1993Alfreð Finnbogason 1 fyrir Augsburg á móti Dortmund 20. mars 2016
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Fleiri fréttir Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Sjá meira