Simeone í þriggja leikja bann fyrir boltastráksmálið Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. apríl 2016 16:30 Diego Simeone missir af lokaleikjum mótsins. vísir/getty
Diego Simeone, þjálfari Atlético Madrid, fær ekki að vera á hliðarlínunni í síðustu þremur deildarleikjum liðsins þar sem hann var úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir brottvísunina sem hann fékk um síðustu helgi. Argentínumaðurinn var sendur upp í stúku í 1-0 sigri Atlético gegn Málaga síðastliðinn laugardag þegar bolta var kastað inn á völlinn úr boðvangnum. Simeone kastaði boltanum ekki sjálfur en sætti sig við brottvísun dómarans Antonio Mateu þar sem hann gat ekki gert neitt annað en rekið Simeone af velli. „Það er klárt að dómarinn gerði rétt. Hann fylgdi bara reglunum. Það er ekki hægt að segja mikið meira en það,“ sagði Simeone eftir leikinn Það var ekki Simeone sem kastaði boltanum heldur ungur boltastrákur en af myndbandsupptöku að dæma má greina að Simeone hvetur drenginn til þess í von um að stöðva leikinn þar sem Málaga var í skyndisókn. „Það var lítill strákur sem kastaði boltanum en það skiptir engu,“ sagði Simeone. Spænska knattspyrnusambandið fór vel yfir myndbandsgögnin og ákvað að úrskurða Simeone í þriggja leikja bann sem er mikið áfall fyrir Atlético Madrid á þessum tímapunkti. Liðið er jafnt Barcelona á toppnum með 82 stig þegar þrjár umferðir eru eftir og er í bullandi séns að verða Spánarmeistari í annað sinn á síðustu þremur árum. Diego Simeone missir af leikjum gegn Rayo vallecano, Levante og Celta Vigo.
Spænski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Fótbolti „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val Íslenski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Fleiri fréttir „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sjá meira