Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Snæfell 80-74 | Ótrúlegur viðsnúningur Hauka Stefán Árni Pálsson skrifar 21. apríl 2016 21:00
Haukar unnu ótrúlegan sigur, 80-74, í úrslitaeinvígi Dominos-deildar kvenna í kvöld eftir frábæran körfuboltaleik að Ásvöllum en framlengja þurfti leikinn til að skera úr um sigurvegara. Helena Sverrisdóttir fór hreinlega á kostum í kvöld og skoraði 45 stig og að auki var hún meidd á kálfa. Mögnuð frammistaða. Liðin mætast aftur á sunnudagskvöldið í Hólminum. Helena Sverrisdóttir byrjaði leikinn á því að setja niður tvö skot í röð og stimplaði sig rækilega inn í leikinn. Haiden Denise Palmer var einnig rétt innstillt í liði Snæfells og var nánast jafnt á öllum tölum til að byrja með í leiknum. Helena og Haiden voru báðar allt í öllu hjá sínum liðum og höfðu Snæfellingar með þriggja stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann, 18-15. Liðin voru bæði í vandræðum sóknarlega í upphafi annars leikhluta og misstu boltann bæði ítrekað frá sér. Sem fyrr voru það tveir leikmenn sem báru upp sóknarleik liðanna, þær Helena Sverrisdóttir hjá Haukum og Haiden Denise Palmer hjá Snæfellingum. Það var samt sem áður greinilegt að Helena var meidd og gat ekki beitt sér almennilega sóknarlega. Hún var samt með 17 stig eftir fyrri hálfleikinn og hafði spila mjög vel. Snæfellingar voru frábærir á vítapunktinum og settu niður 11/12 vítaskotum í fyrri hálfleiknum. Slíkt er gríðarlega mikilvægt í svona leikjum. Staðan í hálfleik var 32-26 fyrir Snæfell. Mikill hraði var í leiknum í upphafi síðari hálfleiks og náðu Snæfellingar að nýta sér það vel. Liðið var fljótlega komið með tólf stiga forystu, 44-32. Þá fóru Haukar í gang og fóru að setja niður skotin. Heimamenn breyttu stöðunni í 46-46 og lítið eftir af þriðja leikhlutanum. Þegar þriðji leikhlutinn var búinn var staðan 48-46 fyrir Snæfell og gríðarlega spenna á Ásvöllum. Snæfellingar byrjuðu fjórða leikhlutann frábærlega og komust strax í 54-46 og þá varð Ingvar Þór Guðjónsson, þjálfari Hauka, að taka leikhlé. Haukar komu með nokkuð sterkt áhlaup eftir þennan kafla hjá Snæfellingum og minnkuðu fljótlega muninn í fjögur stig. Spennan var ógnvænleg undir lok leiksins og þegar 10 sekúndur voru eftir af leiknum höfðu Snæfellingar tveggja stig forskot og Haukar með boltann. Helena Sverrisdóttir fór þá upp völlinn og náði að jafna metin í 69-69. Framlengja þurfti því leikinn. Í framlengingunni voru Haukar mikið mun betri og var bensínið búið hjá Snæfellingum. Haukar unnu að lokum ótrúlegan sigur, 80-74, og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudagskvöldið í Hólminum. Liðið leiðir einvígið 2-1.Haukar-Snæfell 82-74 (15-18, 11-16, 20-14, 23-21, 13-5) Haukar: Helena Sverrisdóttir 45/11 fráköst/6 stoðsendingar, Pálína María Gunnlaugsdóttir 10/4 fráköst/7 stoðsendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 7/13 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 5/10 fráköst, Dýrfinna Arnardóttir 4, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 4/4 fráköst, Shanna Dacanay 3, Hanna Þráinsdóttir 2, María Lind Sigurðardóttir 2, Þóra Kristín Jónsdóttir 0, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0.Snæfell: Haiden Denise Palmer 33/15 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Gunnhildur Gunnarsdóttir 15/7 stoðsendingar, Bryndís Guðmundsdóttir 12/8 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 10/9 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 2/4 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2, Andrea Björt Ólafsdóttir 0, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 0, María Björnsdóttir 0, Rebekka Rán Karlsdóttir 0, Sara Diljá Sigurðardóttir 0/4 fráköst, Erna Hákonardóttir 0. Ingvar: Helena var eins og hún væri andsetinIngvar Þór Guðjónsson, þjálfari Hauka.Vísir/Ernir„Við vörðum heimavöllinn sem við börðust fyrir í allan vetur fyrir og það er frábært,“ segir Ingvar Þór Guðjónsson, þjálfari Hauka, eftir sigurinn. „Helena steig upp í kvöld og svo í vitni í Ívar Ásgrímsson, landsliðsþjálfa, hún var algjörlega andsetin inni á vellinum.“ Ingvar segir að frammistaða Helenu hafi verið ótrúleg í kvöld. „Við ætluðum okkur að komast í bílstjórasætið í kvöld og það gekk. Núna er það bara næsti leikur og við mætum klárar.“ Ingi: Ég tek þetta á mig, þetta var mér að kennaIngi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells.vísir/anton„Við framkvæmum innkastkerfi illa undir lokin og ég tek þetta bara á mig, þetta er mér að kenna,“ segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir tapið. „Ég setti bara upp rangt kerfi undir lok venjulegs leiktíma. Þetta var sennilega frábær leikur fyrir áhorfendur en það er bara svo stutt á milli í þessu og það munaði engu fyrir okkur.“ Hann segir að liðið sé í raun bara enn á áætlun og það þurfi alltaf að vinna einn leik í Hafnafirði. „Haukarnir spiluðu frábærlega í kvöld og Helena var ótrúleg. Skotin duttu bara fyrir þær í framlengingunni. Við mætum bara brjálaðar í leikinn á sunnudagskvöldið og jöfnum þetta einvígi.“ Helena: Prófaði fyrst að hoppa í upphitunHelena Sverrisdóttir.Vísir/Vilhelm„Ég er svo ánægð að við náðum að klára þennan leik ,“ segir Helena Sverrisdóttir, eftir ótrúlegan leik í kvöld. „Maður er bara í skýjunum núna. Ég prófaði fyrst að hoppa á kálfanum í upphitun og ég er bara með frábæra sjúkraþjálfara og lækna í kringum mig.“ Hún segir að liðið hafi sýnt meiri vilja í framlengingunni og það hafi skilað sigrinum. „Þær eru ekki búnar að tapa þarna í tvö ár og hversu sæt væri að vinna Íslandsmeistaratitilinn á þeirra heimavelli. Núna ætla ég bara að njóta þess að hafa unnið þennan leik í kvöld. Mig langar bara að spila aftur núna, þetta er svo skemmtilegt.“Tweets by @Visirkarfa1
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fleiri fréttir Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Stólarnir stríddu toppliðinu „Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 94-80 | Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram Er von á öðru meistaraplani frá Baldri? Strákarnir á skólabekk fyrir Ungverjaleik Kyrie Irving vill spila með Áströlum á Ólympíuleikunum Tommi vildi ekki meiða Albert Guðmunds og Nablinn harður í horn að taka á vellinum Valdi flottasta búning deildarinnar Sjá meira