Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands býður upp á mjög athyglisverðan hádegisfund í sal E í Íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal á miðvikudaginn en fundurinn mun standa yfir frá klukkan 12.00 til 13.00. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands segir frá fundinum á heimasíðu sinni.
Viðfangsefni fundarins er mál sem hefur komið meira og meira inn í umræðuna að undanförnu eftir að hafa verið alltof lengi á bak við tjöldin. Spurningin sem á að svara á fundunum á miðvikudaginn er eftirfarandi: Hvernig er að vera hinsegin íþróttamanneskja á Íslandi í dag?
María Helga Guðmundsdóttir, landsliðskona í karate, íþróttaþjálfari og jafningjafræðari á vegum Samtakanna '78, fjallar um stöðu hinsegin fólks í íþróttum og leiðir til að stuðla að því að allt íþróttafólk geti hámarkað árangur og ánægju í íþróttaheiminum.
María Helga vann í vetur gull og brons á opna sænska meistaramótinu í Malmö í mars og hún vann einnig silfur í í kumite kvenna á Norðurlandamótinu í Álaborg í Danmörku í apríl.
Í fyrirlestrinum hennar Maríu Helgu verður ýmsum umræðuefnum velt upp og þar á meðal þessum þremur:
Hvað er kynjakerfið og hvernig hefur það áhrif á íþróttamenningu? Hvað þýða hugtök eins og intersex og kynsegin?
Hvernig birtast fordómar á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar og kyneinkenna í íþróttum?
Hvaða reglur gilda um þátttöku trans og intersex fólks í kynjaskiptum keppnisíþróttum? Og hvað er hægt að gera sem þjálfari eða liðsfélagi til að styðja hinsegin fólk í íþróttum og stuðla að opnu og fordómalausu umhverfi?
Fundurinn verður líka tekinn upp og gerður aðgengilegur á heimasíðu ÍSÍ nokkrum dögum seinna.
Það er hægt að skrá sig á fundinn hér og lesa meira um fundinn inn á fésbókarsíðu hans.
