Íslenskur dómari dæmir síðasta leik Spánverja fyrir EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2016 12:45 Vilhjálmur Alvar Þórarinsson. Vísir/Vilhelm
Spánverjar hafa verið Evrópumeistarar í átta ár samfellt en þeir stefna nú á það að vinna þriðja Evrópumótið í röð þegar EM í Frakklandi hefst á föstudaginn. Generalprufa spænska liðsins fyrir Evrópumótið verður vináttulandsleikur á móti Georgíu í Getafe á Spáni á morgun þriðjudag. Íslenski dómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður þar í eldlínunni en Knattspyrnusamband Íslands segir frá því á heimasíðu sinni að Vilhjálmur Alvar muni dæma síðasta leik Spánar fyrir úrslitakeppni EM í Frakklandi. Vilhjálmi til aðstoðar í leiknum verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson en fjórði dómari er heimamaður, Juan Martinez Munuera. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var þrítugur á síðasta ári en hann hefur verið FIFA-dómari frá 2015 og hefur dæmt í Pepsi-deildinni undanfarin sjö tímabil. Hann hefur dæmt sex leiki í deildinni í fyrstu sjö umferðunum en var varadómari í leik Vals og Stjörnunnar í gær. Þetta verður þriðji vináttulandsleikur Spánverja síðan að tímabili félagsliðanna lauk en liðið vann 3-1 sigur á Bosníu og 6-1 sigur á Suður-Kóreu. Fyrsti leikur spænska liðsins á Evrópumótinu í Frakklandi verður síðan á móti Tékklandi í Toulouse 13. júní næstkomandi.
EM 2016 í Frakklandi Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Sjá meira