Hamilton er þar með kominn fram úr Rosberg í heimsmeistarakeppni ökumanna í fyrsta skipti á árinu. Hamilton er með sex stiga forskot en bilið fyrir keppnina var eitt stig Rosberg í vil.
Hamilton stal fyrsta sætinu af Rosberg strax í ræsingunni. Hamilton stakk svo bara af, hann var ekki nema einn hring að skapa sér talsvert forskot.
Jenson Button ætlaði að hætta keppni á McLaren bílnum eftir fimm hringi. Bíllinn missti þrýsting í glussakerfinu. Liðið sagði honum að vera áfram úti. „Frábært þetta verður skemmtileg keppni,“ svaraði Button kaldhæðnislega. Button var svo refsað fyrir samskiptin, í takt við nýjar reglur um talstöðvasamskiptin. Honum var gert að aka í gegnum þjónustusvæðið. Button hætti svo keppni á 63. hring.
Max Verstappen kom í talstöðina og kvartaði yfir því að aka fyrir aftan liðsfélaga sinn hjá Red Bull, Ricciardo. „Ég er að keyra eins og amma hérna,“ sagði Verstappen. Honum fannst Ricciardo ekki aka nógu hratt.
Sebastian Vettel tókst að komast fram úr Verstappen í gegnum þjónustuhlé. Kimi Raikkonen gerði Verstappen svo lífið leitt. Raikkonen hóf keppni á harðari dekkjum en fremstu menn, þar á meðal Verstappen. Hann ók því lengur inn í keppnina áður en hann tók sitt fyrsta þjónustuhlé.
Hamilton tilkynnti í talstöðinni á 20. hring að hann ætti erfitt með að halda uppi hraðanum. Rosberg sótti á hann. Eins nálguðust næstu menn, Ricciardo, Vettel, Raikkonen og Verstappen, hratt.
Hamilton virtist þó finna taktinn aftur og náði að halda Rosberg fyrir aftan sig.
Hamilton kom svo inn á þjónustusvæðið á hring 41 og Vettel kom inn á sama tíma. báðir ökumenn ætluðu greinilega að keyra til loka en keppnin var 70 hringir.
Mesta baráttan á brautinni var á milli Raikkonen og Verstappen. Verstappen varðist árásum Finnans hring eftir hring.
Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit helgarinnar.