Conor mætti of seint á fundinn og var í fyrstu um að ræða hinn rólegasta blaðamannafund. Þegar um 17 mínútur voru liðnar mætti Conor. Skömmu eftir það sleit Dana White, forseti UFC, blaðamannafundinum.
Til orðaskipta kom á milli McGregor og Diaz eftir að sá síðarnefndi stóð upp og virtist ganga út af blaðamannafundinum. Það endaði með því að Diaz kastaði flösku að sviðinu og McGregor svaraði með því að grípa allar vatnsflöskur sem hann sá og kasta þeim til baka. Dana White, forseti UFC, reyndi að stöðva hann en tókst það ekki.
Blaðamannafundinn í heild sinni má sjá hér að ofan, en hér að neðan má sjá atvikið umrædda.
Anthony Johnson og Glover Teixeira voru einnig á fundinum en það fór ekki mikið fyrir þeim.
Bardaginn fer fram á laugardagskvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is.
Not even close. There was absolutely nothing fake about that. That's why it was compelling. https://t.co/e8zBSwyHXQ
— Ariel Helwani (@arielhelwani) August 17, 2016