Rakel: Erum að mæta mjög góðu liði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. ágúst 2016 16:30 Rakel tryggði Blikum bikarmeistaratitilinn 2013 og hér lyftir hún bikarnum. vísir/daníel
Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiðabliks, á góðar minningar frá eina bikarúrslitaleiknum sem hún hefur spilað. Fyrir þremur árum mættu Blikar hennar gamla liði, Þór/KA, og skoraði Rakel markið sem tryggði Kópavogsliðinu bikarinn. Núna er Rakel fyrirliði Breiðabliks og vonast að sjálfsögðu eftir því að lyfta bikarnum í leikslok. „Það er alltaf spennandi og skemmtilegt að spila bikarúrslitaleiki, sérstaklega á Laugardalsvelli,“ sagði Rakel á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ sem var haldin í tilefni af úrslitaleikjunum í Borgunarbikar karla og kvenna. Andstæðingurinn í dag kemur frá Vestmannaeyjum og Rakel segir að Blika bíði erfitt verkefni.Sjá einnig: Gjörólíkur leikstíll liðanna „Þær eru með mjög gott lið og þetta verður jafn og spennandi leikur,“ sagði Rakel sem er að mestu ánægð með gengi Breiðabliks í sumar þó hún gráti nokkur töpuð stig í Pepsi-deildinni. Það er nóg að gera hjá Blikum í ágúst en liðið spilar þá átta leiki, í deild, bikar og forkeppni Meistaradeildar Evrópu. „Þetta er þétt dagskrá og við þurfum að passa vel upp á okkur,“ sagði Rakel að lokum.Bikarúrslitaleikur Breiðabliks og ÍBV hefst klukkan 19:15. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD og hefst útsending hálftíma fyrir leik. Þá verður einnig hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Sjá meira