Hildur mun því keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe 30. janúar 2017 á Filippseyjum. Ekki hefur íslensk stúlka tekið þátt í keppninni síðan 2009 og verður Hildur því sú fyrsta í átta ár.
Í öðru sæti var Sigrún Eva Ármannsdóttir og í þriðja sæti var Andrea Sigurðardóttir.
Hildur María er 23 ára kona úr Kópavoginum sem starfar sem flugfreyja hjá Icelandair.
Mikill fjöldi kvenna sótti um þátttöku í keppninni en 21 stúlka keppti um titilinn.
Hildur María mun fljúga til Bandaríkjanna strax á fimmtudag þar sem við tekur þriggja vikna langt ferðalag um landið. Aðalkeppni Miss Universe fer svo fram á Filippseyjum þann 30. janúar.
Hér fyrir neðan má sjá myndasafn frá keppninni.