BMW mætir til Le Mans Finnur Thorlacius skrifar 27. september 2016 16:42 Síðasti bíll sem BMW tefldi fram í Le Mans var þessi BMW M3 GT2 bíll.
BMW hefur ekki tekið þátt í 24 klukkutíma þolaksturskeppninni í Le Mans í Frakklandi í 5 ár en hefur ákveðið að mæta til keppni árið 2018. BMW mun etja þar kappi við framleiðendur eins og Audi, Porsche, Aston Martin, Ferrari og Ford. BMW hefur ekki látið uppi hverskonar bíl fyrirtækið muni tefla þar fram, en víst má telja að hann verður bæði knúinn brunavél og rafmagnsmótorum, líkt og flestir aðrir framleiðendur hafa gert er náð hafa góðum árangri á síðustu árum. BMW á langa sögu í Le Mans þolakstrinum og keppti þar fyrst árið 1930. BMW tefldi fram BMW 3,0 CLS og 3,5 CLS bílum í kappakstrinum á áttunda áratugnum áður en BMW M1 Procar keppti þar fyrir þeirra hönd. BMW útvegaði að auki 6,1 lítra V12 vélina í McLaren F1 GTR bílinn sem vann í Le Mans árið 1995. Fyrsti sigur BMW í keppninni kom þó ekki í hús fyrr en árið 1999 með BMW V12 LMR bílnum sem BMW þróaði með Williams Grand Prix liðinu.
Mest lesið Frans páfi er látinn Erlent Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Innlent Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Innlent Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Innlent „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Innlent Deildi hernaðarupplýsingum í öðru spjalli með konu sinni og bróður Erlent Hvernig er nýr páfi valinn? Erlent Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Innlent