Skoðun

Góðar samgöngur eru arðsamar

Sigurjón Þórðarson skrifar

Í umræðu um samgöngumál á Íslandi er um of horft á kostnaðarhliðina, án þess að tekin sé með í reikninginn arðsemin af greiðum og öruggum samgöngum.



Augljóst er að stytting akstursleiða og bætt bætt öryggi samgangna hafa gríðarlega jákvæð áhrif á umhverfi og efnahag. Vegabætur stækka atvinnusvæði, minnka eldsneytiskostnað, minnka slit og viðhaldskostnað á vegum og bifreiðum.

Þeir sem leggja leið sína um þjóðvegi landsins eða eiga afkomu sína undir að senda vörur og ferðamenn landshorna á milli vita að ráðamenn hafa gleymt þeim jákvæðu umhverfis- og efnahagslegum áhrifum sem bættar samgöngur hafa. Einblínt hefur verið um of á niðurskurð á vegafé til þess að ná skjótum bata í rekstri hins opinbera.



Ef dæmið er reiknað til enda þá er hætt við að verið sé oftar en ekki að spara aurinn og henda krónunni. Hvert alvarlegt umferðarslys er gríðarlega kostnaðarsamt metið í krónum og aurum fyrir utan það sem aldrei verður metið til fjár.



Á sunnanverðum Vestfjörðum er verið að stórefla fiskeldi og er ljóst að innan skamms stefnir í að fluttir verði tugir þúsunda tonna af eldislaxi um vegina til viðbótar þeirri umferð sem nú fer um hættulegan og frumstæðan þjóðveg vestur í Vesturbyggð. Allir þeir hálsar og fjallvegir sem vegurinn liggur um kosta óþarflega mikla eldsneytiseyðslu, fyrir utan þá miklu óþarfa hættu sem leiðin leggur á ferðafólk. Fyrir raunverulega umhverfisverndarsinna og þá sem vilja tryggja framtíðarhag byggðarinnar skiptir miklu máli að hraða því sem mest má að lagður verði öruggur og greiðfær vegur á láglendi að vestan og suður til Reykjavíkur. Mikilvægt er því út frá sjónarmiðum umhverfisins að greiða götu samgangna og ryðja öllum steinum úr vegi þess að samgöngubætur dragist á langinn.



Hrópar á fjármagn

Sama á við um almennt viðhald og breikkun vega sem gerði stórum vöruflutningabílum auðvelt að mætast og bætti öryggi hjólreiðamanna. Vegakerfið er víða farið að hrópa á fjármagn, m.a. á Norðurlandi vestra vegna sigs sem veldur ógreiðfærum ójöfnum og mjókkun vega. Ekki þarf að fjölyrða um slysahættu sem stafar af hættulegum vegum eða þeim skaða á umhverfi sem getur orðið við flutning á hættulegum efnum s.s. olíu.



Mikilvægt er að auka almennan skilning á þeirri nauðsyn að auka fjármagn til vegamála og búa til sanngjörn viðmið í stefnumótun og forgangsröðun framkvæmda.



Ég hef þá trú að flestir landsmenn séu tilbúnir að forgangsraða í þágu umferðaröryggis og að mikilvægar útflutningsvörur eigi greiða leið um umferðaræðar þjóðfélagsins.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×