Sextán ára strákur gæti spilað fyrir „Gömlu konuna“ um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2016 22:45 Moise Kean. Vísir/Getty
Framherjinn Moise Kean gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir stórlið Juventus á morgun þegar liðið mætir Emil Hallfreðssyni og félögum í Udinese í ítölsku deildinni á morgun. Það ætti svo sem ekki að vera nein stórfrétt þótt að leikmaður fái sitt tækifæri með Juventus nema það að Moise Kean er fæddur 28. febrúar 2000. Hann er því aðeins sextán ára gamall. Moise Kean hefur verið kallaður hinn nýi Mario Balotello á Ítalíu en þessi strákur hefur raðað inn mörkum fyrir unglingalið Juventus. Hann hefur skorað og skorað þrátt fyrir að leika oftast á móti eldri strákum. Moise Kean er ættaður frá Fílabeinsströndinni og hefur alltaf talað um að hann sé stoltur af upprunanum. Hann er samt fæddur á Ítalíu og hefur spilað fyrir ítölsku unglingalandsliðin. Nú hafa dyrnar opnast fyrir strákinn inn í aðallið Juventus og ítalskir fjölmiðlar skrifa um möguleikann á því að Moise Kean spili sinn fyrsta leik um helgina. Króatíski landsliðsmaðurinn Marko Pjaca meiddist í undankeppni HM og verður ekkert með Juventus-liðinu á næstunni. „Annaðhvort Paulo Dybala eða Gonzalo Higuain munu hvíla í leiknum og vegna þess að Marko Pjaca er ekki heldur með þá ætlum við að kalla á Moise Kean inn í hópinn,“ sagði Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus. „Strákurinn hefur mikla hæfileika en hann er aðeins sextán ára gamall og þarf á meiri leikreynslu að halda,“ sagði Allegri. Framtíð Moise Kean ræðst svo sem ekkert í leiknum á morgun en hann gæti aftur á móti stimplað sig inn á fótboltakortið með góðri frammistöðu.
Ítalski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Fleiri fréttir Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Sjá meira