

Um sáttakjaftæði
Mér finnst prýðilega leyfilegt að koma fram af kurteisi og skikkanlegri samúð við sigraða andstæðinga, í þessu tilfelli þá sem hafa orðið efnamenn eða meira á kvótakerfinu frá 1984 í sjávarútvegi og þá sem enn hokra í skjóli búvörulaganna frá 1985 og á útkjálkum í skjóli afurðasölulaganna frá 1934. Það er heldur ekki skynsamlegt eða vitlegt að dauðpína þá sem ættu að verða bröttustu verktakarnir í þeim bransa að veiða fisk fyrir þjóðina.
Hvað landbúnaðinn varðar þá getur vel verið að þar séu lífvænlegir blettir innan um, nokkuð augljóslegast í tengslum við ferðamennsku og varðveislu sérstæðra og merkilegra húsdýrastofna. Hver veit heldur nema hér gæti þess utan þróast lífvænlegur landbúnaður ef gamalli hörmungalöggjöf væri aflétt, nú þegar árar betur og leyfilegt er að flytja inn nýjustu græjur. Jafnvel svínarí og fjaðrafok gætu átt sjans ef samkeppnin kæmi að utan og innlendir framleiðendur fengju að stilla sig saman.
Í ljósi gamallar og viðvarandi velvildar almennings er líka óvíst að túlka megi umboð kjósenda til að rífa upp búvörubullið sem skilyrðislaust skotleyfi á bændur né andstöðu við þjóðargjöf á kvóta sem kröfu um að leggja Raufarhöfn í rúst. En að fara t.d. hugsunarlaust með glórulausa landbúnaðarstyrki úr 25 milljörðum á ári (PSE frá OECD fyrir innvígða, og vantar þó sennilega einhverja ríkisstyrki inn í það) í besta falli niður í svo sem 12-15 og taka þriðjung eða svo af kvóta í hlut þjóðarinnar, væri arfalélegt hálfkák.
Sáttakjaftæðið er annars gamalgróið og hefðbundið trix þeirra pólitísku málaliða sem hafa að aðalstarfi að hygla sérhagsmunum. Það náði hæst, þegar ríkisstjórnin 2009-2013 skipaði – hvað haldið þið – sáttanefnd til að finna lausn í kvótamálinu. Í fréttatilkynningu sjávarútvegsráðherra 2. júlí 2009 eru taldir upp 16 nefndarmenn, 6 þingmenn, allir úr plássum sem voru – og eru – undir nöglinni á útgerðum staðarins, einn bæjarfulltrúi og einn verkalýðsforkólfur úr sams konar plássum, 3 frá samtökum útgerðarmanna, 2 frá fiskvinnslusamtökum og 3 frá sjómönnum. Sem sagt, 16-0 fyrir sérhagsmuni og algert svartamyrkur fyrir þau 64% kjósenda sem þá bjuggu á Reykjavíkursvæðinu. Reyndar dúkkaði upp einn líklegur málsvari almannahagsmuna í skilaplaggi nefndarinnar, líklega vegna þess að í ógáti hafi ráðherrann gleymt nýjum þingflokki Borgarahreyfingarinnar. Útkoman varð eins og til var stofnað, furðukokkteill af byggðastefnubulli og sérhagsmunaþjónkun sem dagaði sem betur fer uppi.
Grafnir út og suður
Nú er ástæða fyrir almenning og hagsmunina hans að hafa af því áhyggjur að Viðreisn og Björt framtíð og ótrúlegt nokk jafnvel VG séu að búa sig undir að ganga í björg með Sjálfstæðisflokknum. Ekkert bendir til þess að þar fari betur fyrir almannahagsmunum en í sáttanefndinni forðum. Eftir japl og jaml og fuður verða þeir grafnir út og suður. Bjarni gæti samþykkt obbolítið ESB enda mestanpart sloppinn undan undan blýantsenda ritstjórans. Meira að segja VG hefur gefið til kynna að það mætti sosum ræða eitthvað svoleiðis ef þjóðin væri svo vitlaus að vilja það endilega. Svo yrðu einhver fíkjublöð til sjós og lands sem gætu orðið verri en ekkert, t.d. ef þau festu í sessi 14-2 fyrir sérhagsmunina. Það myndi staðfesta þann beyg sem af og til var eins og kaldur sviti á sálarbakinu þegar ég mætti á fundi hjá Viðreisn að minn nýi flokkur kynni að vera undir stjórn tómra Euro-búra sem skreyttu sig stolnum fjöðrum í landbúnaðar- og kvótamálum í kosningabaráttunni, en yrðu fljótir að hrista þær af sér eftir kosningar.
En á Íslandi 2016 eru til ráð við því. Ef eða þegar herlegheitin birtast og reynast óþolandi, mætti safna undirskriftum meðal þeirra sem játuðu að hafa kosið A eða C – og jafnvel VG þar sem kjósendur drægju umboð sitt táknrænt til baka vegna þess að það hafi ekki verið veitt til að gefa afslætti af almannahagsmunum. Það væri allnokkur spá fyrir Bjartri framtíð Viðreisnar. Svo mætti reyna að koma nýjum forseta í æfingu við að hjálpa Alþingi að þjóna almannahagsmunum. Fordæmin eru nýleg.
En best væri að Viðreisn og Björt framtíð sæju að sér, VG fattaði að á höfuðborgarsvæðinu býr líka fólk, að Píratar legðu fram gögn fyrir því að þeir séu stjórntækir og Samfylkingin herti sig upp og ákvæði að eignast framhaldslíf í þjónustu við almannahagsmuni. Og öll dýrin í þeim hluta skógarins yrðu vinir.
Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar

Ég virði þig og þín mörk, virðir þú mig og mín mörk ?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar

„Þessu er alltaf lofað fyrir kosningar en alltaf svikið“
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Þjóðaröryggi að vera aðildarríki að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar

Fullvalda utan sambandsríkja
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Salómonsdómur, lög og ólög
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sjálfstæðir grunnskólar í hættu
Benedikt S. Benediktsson skrifar

Borgaralegur vígbúnaður
Dr. Bjarni Már Magnússon skrifar

Áskoranir og tækni í heilbrigðisþjónustu
Teitur Guðmundsson skrifar

Ósunginn óður til doktorsnema
Styrmir Hallsson skrifar

Frjáls umræða ekki lengur leyfð í USA – Skoðanafrelsi í hættu – Amerískt Gestapo í uppsiglingu?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Tannhjól í mulningsvél?
Arnar Þór Jónsson skrifar